Sunnudaginn 17. maí verður vorhátíð sunnudagaskólans kl. 11. Hátíðin hefst með fjölskylduguðsþjónustu, þar sem Styrmir Örn Guðmundsson, verður með tónlistargjörning og spilar vorlög á trommu. Að henni lokinni verður farið út í garðinn. Þar verða hoppukastalar og andlitsmálning auk þess sem pylsur verða grillaðar ofan í gesti. Allir velkomnir!
Ath. ekki verður hefðbundin messa þennan dag.