Krossgötur 19. september
Krossgötur hefjast aftur eftir sumarfrí þriðjudaginn 19. september kl. 13.00. Þá mun Skúli S. Ólafsson, prestur í Neskirkju, kynnir dagskrána í vetur og deilir frásögum úr ýmsum áttum. Eins og venjulega bjóðum við upp á vikuleg erindi með kaffiveitingum á Torginu í Neskirkju. Dagskráin er fjölbreytt og tengist ýmsum sviðum [...]
Messa 17. september
Messa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Helga Kolbeinsdóttir. Söngur, sögur, gleði og gaman í sunnudagskólanum. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Kaffisopi og samfélag á Torgi eftir messu.
Messa 3. september
Messa í Neskirkju sunnudaginn 3. september kl. 11. Dagur kærleiksþjónustunnar, lagt verður út af óði Páls postula til kærleikans. Upphaf sunnudagskólans að hausti. Félagar úr Kór kirkjunnar syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Barnastarfið byrjar inn í kirkju en fer síðan inn í safnaðarheimili þar [...]
Messa 27. ágúst
Messa kl. 11.00. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Helga Kolbeinsdóttir, en hún mun leysa sr. Steinuni Arnþrúði af í vetur. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna. Kaffi og samfélag á Torginu eftir messu.
Messa 20. ágúst
Messa kl. 11:00 sunnudaginn 20. ágúst. Fermingarbörn og foreldrar eru sérstaklega boðuð. Fjallað verður um einstaka liði messunar og þeir útskýrðir. Í framhaldi ökum við í lund Neskirkju í Heiðmörk þar sem við setjum niður birkigræðlinga, einn fyrir hvert fermingarbarn. Prestar eru sr. Helga Kolbeinsdóttir og sr. Skúli S. Ólafsson. [...]
Guðþjónusta 13. ágúst
Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Guðsþjónusta 6. ágúst
Guðsþjónusta kl. 11:00 á Torginu í safnaðarheimili Neskirkju. Kaffi á boðstólnum fyrir nærstadda. Félagar í Kór Neskirkju syngja. Prestur er sr. Skúli S. ÓIafsson. Ef veðrið leikur við okkur verðum við úti í garði með helgihaldið.
Guðsþjónustur næstu sunnudaga
Guðsþjónusta 23. og 30. júlí kl. 11:00 á Torginu í safnaðarheimili Neskirkju. Kaffi á boðstólnum fyrir nærstadda. Félagar í Kór Neskirkju syngja. Prestur er sr. Skúli S. ÓIafsson. Ef veðrið leikur við okkur verðum við úti í garði með helgihaldið.
Messa og opnun sýningar
Torgið í Neskirkju þykir vera einn framsæknasti sýningarsalur hérlendis. Sunnudaginn 2. júlí kl. 11:00 opnar sýning Hulda Stefansdottir í þessu rými. Yfirskrift sýningarinnar er Jaðarstund/Marginal Moments. Listamaðurinn kemst svo að orði í kynningu: ,,Við erum á jaðarstund. Það liggur einhver tærleiki í loftinu á þessum stundum sumarsins. Án skugga engin [...]
Prjónamessa 25. júní
Prjónamessa í safnaðarheimili kl. 11. Messugestum velkomið að hafa með prjóna eða aðra handavinnu. Meðlimir í prjónahóp Neskirkju aðstoða við messuna. Félagar úr Kór Neskirkju leiða söng. Gunnsteinn Ólafsson annast undirleik. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Messan verður með kaffihúsasniði. Setið við borð, kaffi og te í boði.