Messur

Stúlknakór syngur við messu 31. maí

Sunnudaginn 31. maí er messa kl. 11:00. Stúlknakór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar, organista. Sjálfboðaliðar elda súpu og bjóða til hádegisverðar að messu lokinni. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.

By |2017-04-26T12:23:15+00:0026. maí 2015 20:06|

Uppstigningardagur

Fimmtudaginn 14. maí, uppstigningardag er messa í Neskirkju kl. 11:00. Hljómur, kór eldri borgara í Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Veglegar veitingar í boði safnaðar að messu lokinni. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.

By |2017-04-26T12:23:15+00:0011. maí 2015 13:51|

Háskólakórinn syngur í messu 3. maí

Sunnudaginn 3. maí kl.11:00 er að vanda messa í Neskirkju. Í predikun dagsins er fjallað um hugmyndina um skilyrðislausa ást, sem er að mati margra eitt það besta sem börn geta fengið úr uppeldinu. Hún birtist á mörgum öðrum sviðum í lífinu og er til umfjöllunar í ritningartextum þessa sunnudags. Háskólakórinn syngur undir stjórn Gunnsteins [...]

By |2017-04-26T12:23:16+00:0027. apríl 2015 18:18|

Hvar eru leiðtogarnir? Messa með Háskólakórnum 19. apríl

Sunnudaginn 19. apríl kl. 11:00 er messa í Neskirkju. Háskólakórinn syngur undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. Predikunin fjallar um leiðtoga, hvernig þeir eru og hvar þá er að finna. Barnastarfið er í höndum sr. Sigurvins, Katrínar og Ara. Messuþjónar lesa texta. Kaffi og kruðerí á Kirkjutorgi að messu lokinni. .

By |2017-04-26T12:23:16+00:0013. apríl 2015 09:23|

Helgihald í dymbilviku og á páskum

Pálmasunnudagur, 29. mars Hátíðarmessa og barnastarf kl. 11. Kirkjudagur Neskirkju. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Skúla S. Ólafssyni. Messuþjónar taka þátt. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón hafa Katrín Helga Ágústsdóttir og Ari Agnarsson. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu. Skírdagskvöld, [...]

By |2017-04-26T12:23:16+00:0024. mars 2015 12:26|

Messa og barnastarf 8. mars kl. 11:00

Sunnudaginn 8. mars kl. 11:00 er messa og sunnudagaskóli í Neskirkju. Barnastarfið er í höndum sr. Sigurvins, Katrínar og Ara. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Messuþjónar lesa texta og bera fram kaffi að messu lokinni. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.

By |2015-03-02T13:25:31+00:002. mars 2015 13:25|

Fjölskylduguðþjónusta og vorhátíð sunnudagaskólans

Sunnudaginn 18. maí var vorhátíð sunnudagaskólans í Neskirkju. Klukkan 11 hófst fjölskylduguðþjónusta í kirkjunni, sóknarprestur Neskirkju Sr. Örn Bárður Jónsson þjónaði fyrir altari. Flautusveit lék undir stjórn Pamelu deSensi lék, barnakór Neskirkju og stúlknakór sungu. Í lok guðþjónustunnar var boðið upp á pylsur í kirkjugarðinum, andlitsmálingu og hoppukastala.  Kíktu á myndböndin frá hátíðinni.  

By |2017-04-26T12:23:21+00:0015. maí 2014 12:50|

Messa og barnastarf 5. janúar.

Messa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. Allir velkomnir og ekkert vandamál með pláss og sæti!

By |2014-01-03T19:00:57+00:003. janúar 2014 19:00|

Ljósamessa 15. desember

Fermingarbörnin taka þátt í ljósamessunni á sunnudaginn kemur, 15. desember, sem er þriðji sunnudagur í aðventu. Messan hefst kl. 11 eins og venjulega. Fermingarbörn og foreldrar eru boðuð til þessarar messu til að staldra við á aðventunni og íhuga táknmál þessa tíma. Organisti Steingrímur Þórhallsson og félagar úr Kór Neskirkju syngja. Meðhjálparar Valdimar Tómasson og [...]

By |2017-04-26T12:23:23+00:0010. desember 2013 14:30|