Fréttir

Prestur í Noregi

Krossgötur miðvikudaginn 17. maí kl. 13.30. Sr. Arna Grétarsdóttir, sóknarprestur á Reynivöllum kemur í heimsókn. Á þjóðhátíðardegi Norðmanna, hlýðum við á sr. Örnu lýsa viðburðarríkum störfum sínum meðal Íslendinga í Noregi, þar sem hún þjónaði í rúman áratug. Kaffiveitingar

By |2017-05-16T09:25:54+00:0016. maí 2017 09:25|

Messa og sunnudagaskóli 14. maí

Sr. Sigurlín Ívarsdóttir predikar í messunni 14. maí. Hún lærði guðfræði við HÍ og starfaði sem prestur í ensku biskupakirkjunni í nokkur ár. Félagar úr kór Neskirkju syngja í messunni undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað. Eftir sameiginlegt upphaf fer sunnudagaskólinn yfir í safnaðarheimilið þar sem [...]

By |2017-05-12T11:00:30+00:0011. maí 2017 09:50|

Aðalsafnaðarfundur Nessóknar

Aðalfundur Nessóknar verður haldin sunnudaginn 14. maí k. 12.20, að lokinni sunnudagsmessu safnaðarins, í safnaðarheimili kirkjunnar. Venjuleg dagskrá aðalsafnaðarfundar. Sóknarnefnd Neskirkju.

By |2017-05-09T10:51:11+00:009. maí 2017 10:51|

Starf prófasts

Krossgötur miðvikudaginn 10. maí kl. 13.30. Helga Soffía Konráðsdóttir, prófastur Reykjavíkurprófastsdæmis vestra hefur mörgum hnöppum að hneppa í starfi sínu sem prófastur. Embætti þessi eru gróin í kirkjulegri stjórnsýslu en í borgaralegu umhverfi á okkar dögum má ætla að sífellt bætist við ný verkefni sem prófastur þarf að sinna. Kaffiveitingar.

By |2017-05-09T10:48:36+00:009. maí 2017 10:48|

Messa og sunnudagaskóli 7. maí.

Messa og sunnudagaskóli kl. 11 sunnudaginn 7. maí. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða söng, organisti er María Kristín Jónsdóttir. Sr. Steinunn A. Björnsdóttir predikar og þjónar fyrir altari. Textar dagsins fjalla um von og huggun. Þá má lesa á vef kirkjunnar. Sunnudagaskólinn verður líflegur að venju. Hann er í umsjá Stefaníu Steinsdóttur, Katrínar [...]

By |2017-05-04T11:10:47+00:004. maí 2017 11:07|

Krossgötur

Krossgötur miðvikudaginn 3. maí kl. 13.30. Áslaug Gunnarsdóttir, píanóleikari kynnir fyrir okkur tónskáldið Franz Schubert, flytur tónlist og segir sögu hans. Kaffiveitingar.

By |2017-05-02T10:53:54+00:002. maí 2017 10:51|

Hátíðartónleikar Kórs Neskirkju

Laugardaginn 6. maí, kl. 18:00 verður óratórían Júdas Makkabeus eftir G.F. Händel flutt í Neskirkju. Flytjendur eru Kór Neskirkju, Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Hildigunnur Einarsdóttir alt, Gissur Páll Gissurarson tenór, Fjölnir Ólafsson bassi og Hátíðarbarokksveit Vesturbæjar. Stjórnandi er Steingrímur Þórhallsson. Miðasala á tix.is. Aðgangseyrir kr. 4.000 Óratórían Júdas Makkabeus sló í gegn og varð eitt vinsælasta verk Händels [...]

By |2017-05-03T12:24:37+00:002. maí 2017 09:00|

Ölerindi og ölsálmar

Sunnudaginn 30. apríl kl. 20. Saga siðaskiptanna fléttast saman við sögu bjórsins. Sjálfur naut Lúther þess að dreypa á góði öli og þýskir bjórar eru enn bruggaðir samkvæmt reglugerð frá tíma siðaskiptanna. Stefán Pálsson sagnfræðingur fjallar um þessi mál og leiðir okkur inn í sögu bjórsins af sinni alkunnu sagnagleði. Í anda Lúthers hefur Iðunn [...]

By |2017-04-28T11:49:56+00:0028. apríl 2017 11:31|

Messa 30. apríl

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju syngur. María Kristín Jónsdóttir spilar á orgelið. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |2017-04-27T11:32:20+00:0027. apríl 2017 11:32|

Sögur úr Miðjarðarhafi og björgun flóttamanna

Krossgötur miðvikudaginn 26. apríl kl. 13.30 Þórir Guðmundsson, framkvæmdastjóri Rauða krossins í Reykjavík sigldi með björgunarskipi um Miðjarðarhafið nú í vetur og kom að björgun fjölda flóttamanna. Hann segir okkur sögu þessa ferðalags og hvað það situr eftir nú þegar hálft ár er að baki förinni. Kaffiveitingar.

By |2017-04-25T08:40:48+00:0025. apríl 2017 08:40|