Foreldramorgnar
Foreldramorgnar eru alla þriðjudaga milli klukkan 10 og 12 í Neskirkju. Spjall, kaffi og með því! Umsjón með starfinu hefur Nína Agnarsdóttir.
Foreldramorgnar eru alla þriðjudaga milli klukkan 10 og 12 í Neskirkju. Spjall, kaffi og með því! Umsjón með starfinu hefur Nína Agnarsdóttir.
Í tilefni af 60 ára afmæli kirkjunnar verður farin söguferð um Nessókn sunnudaginn 24. september, að lokinni messu. Sóknin var stofnuð árið 1940 og náði þá meðal annars yfir Seltjarnarnes, Fossvog og Kópavog. Ferðin mun þó takmarkast við Seltjarnarnes og Vesturbæ. Ekið verður með rútu frá kirkjunni til Seltjarnarness, að þeim stað sem hin forna [...]
Messa kl. 11:00. Félagar úr Kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Ása Laufey og Ari leiða barnastarfið. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Kaffi á Torginu að messu lokinni og haldið verður í rútuferð á söguslóðir Neskirkju í fylgd sr. Steinunnar og Önnu Þ. Þorgrímsdóttur.
Að lokinni messu sunnudaginn 17. september munu Tómas Ponzi og Björk Bjarnadóttir koma með afurðir til kynningar og sölu úr heimaræktun sinni í Mosfellsdal og einnig verður alls konar smakk af uppskeru organistans, lífrænt te, tómatar, gúrkur svo eitthvað sé nefnt. Allir eru hvattir til að koma með eitthvað með sér úr sínum görðum, sultu krukku, [...]
Uppskeru og haustgróðamessa kl. 11. Fögnum ávöxtum jarðar í tali og söng. Að messu lokinni er boðið upp á kraftmikla grænmetissúpu úr aldingörðum Steingríms Þórhallssonar organista og vina hans. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Félagar úr Kór Neskirkju leiða sönginn. Barnastarfið er á sínum stað undir stjorn Ásu Laufeyjar, Yrju og Ara.
Krossgötur þriðjudaginn 12. september kl. 13.00. Bogi Ágústsson, fréttamaður á Ríkisútvarpinu:Heimur á krossgötum, hugleiðingar um alþjóðamálin. Hvað er að frétta úr henni veröld? Hinn kunni fréttaskýrandi viðrar sjónarmið og rýnir í tíðindi líðandi stundar. Kaffiveitingar. Frá kl. 12.oo er boðið upp á súpu og brauð á Torginu gegn vægu verði.
Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, gleð og gaman í sunnudagskólanum. Umsjón Irma, Katrín og Ari. Samfélaga og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Við fögnum haustinu og upphafi sunnudagaskólans þann 3. september. Sunnudagaskólinn hefst kl. 11 og eftir hann ætlum við að grilla pylsur úti í garði. Sunnudagaskóli verður í umsjón sr. Ásu Laufeyjar Sæmundsdóttur, Katrínar Helgu Ágústsdóttur og Ara Agnarssonar. Það verður söngur og gleði og gamlir kunningjar líta við. Og við hlökkum til að sjá aftur [...]
Messa og sunnudagaskóli kl. 11 sunnudaginn 3. september. Allir kirkjugestir hefja samveruna í kirkjunni en sunnudagaskólinn færist svo yfir í safnaðarheimilið. Eftir messu og sunnudagaskóla verður grillað úti í garði. Kór Neskirkju syngur í messunni og leiðir söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Skúli Sigurður Ólafsson. Sunnudagaskóli verður í umsjón sr. Ásu [...]
Krossgötur hefjast þriðjudaginn 5. september kl. 13. Dagskráin er að vanda fjölbreytt og gestalistinn okkar er glæsilegur. Fyrsta fáum við í heimsókn Árelíu Eydísi Guðmundsdóttur. Erindi hennar heitir ,,Sterkari í seinni hálfleik" og fjallar um það hvernig við getum fullnýtt tækifæri okkar á hverju skeiði ævinnar. Boðið er upp á kaffi og kruðerí og áður [...]