Messa 25. ágúst
Messa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Messa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Á morgun, fimmtudaginn 15. ágúst, hefst fermingarfæðslan hér í Neskirkju. Kynningarfundur vegna starfsins framundan verður miðvikudaginn 14. ágúst kl. 20. Þar verður farið yfir dagskrá vetrarins og ýmis praktísk mál og spurningum svarað. Aðalnámskeiðið er síðan haldið í ágúst og verður dagana 15, 16., 19. og 20. ágúst frá 10 – 15 og kvöldið 20. ágúst [...]
Sunnudaginn 11. ágúst verður messa kl. 11 og opnun sýningarinnar “Regnbogabraut: Falin saga í 1200 ár”. Í messunni munu félagar úr kór Neskirkju leiða söng við undirleik Rósu Kristínar Baldursdóttur. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Að venju leggjum við áherslu á að allir eru velkomnir í messuna, ungir sem aldnir. Það verða blöð og [...]
Um verslunarmannahelgi verður messað kl. 11 á sunnudag að venju. Að þessu sinni verður notað einfalt messuform og við íhugum 23. Davíðssálm, Drottinn er minn hirðir. Félagar úr kór Neskirkju leiða sönginn, prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Hressing og samfélag á kirkjutorgi eftir messu að vanda. Allir hjartanlega velkomnir, ungir sem aldnir. Litir, blöð [...]
Prjónamessa kl. 11 þann 28. júlí. Messan er hefðbundin en fólki er boðið að koma með handavinnuna og prjóna, hekla eða sauma í messunni. Textar, sálmar og predikun tengjast þemanu og Halldóra Sigríður Steinhólm Bjarnadóttir og Jóhanna Elin Guðmundsdóttir, félagar í prjónahópi Neskirkju aðstoða við messuna. Félagar úr Kór Neskirkju leiða söng og prestur er [...]
Messa kl. 11 sunnudaginn 21. júlí. Viðfangsefni textanna er spurning Jesú: Hvern segið þér mig vera? Árni Þór Þórsson guðfræðinemi predikar og sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Neskirkju leiða söng. Allir hjartanlega velkomnir. Blöð og litir í boði fyrir yngstu kynslóðina. Hressing og samfélag á Torginu eftir messu.
Messa kl. 11 sunnudaginn 14. júní. Félagar úr kór Neskirkju leiða söng við undirleik Steingríms Þórhallsonar organista. Prestur er séra Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Umræðuefni: Að henda steinum í aðra. Fólk á öllum aldri er velkomið. Litir og blöð verða í boði fyrir yngri börnin. Hressing og samfélag að lokinni messu.
Sunnudaginn 7. júlí verður messa kl. 11. Félagar úr kór Neskirkju leiða söng. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir predikar og þjónar fyrir altari. Árni Þór Þórsson guðfræðinemi les ritningarlestra og bæn. Barnasvæði með blöðum og litum til staðar fyrir yngri kynslóðina. Í predikun verður fjallað um hve flókið getur verið að þýða - þar á meðal [...]
Guðmundur Ingólfsson ljósmyndari verður til leiðsagnar og móttöku gesta á Torginu í Neskirkju fimmtudaginn 27. júni frá kl.15-17. Sýningin er ella opin til júlíloka á opnunartíma safnaðarheimilis.
Messa kl. 11.00. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. María Krístín Jónsdóttir situr við hljóðfrærið. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Kaffisopi og samfélaga á Torginu eftir messu.