Fréttir

Alfakynningin tókst vel

Góð mæting var á Alfakynningu þriðjudaginn 3. okt. og margir skráðu sig þannig að námskeiðið verður að veruleika og hefst þriðjudaginn 10. okt. og stendur til 5. des. Ef þú hefur áhuga á að vera með skaltu skrá þig sem fyrst því enn eru laus pláss. Alfa hefur áhrif! Viltu vita meira?

By |2006-10-04T11:13:38+00:004. október 2006 11:13|

„Trúlega“ besta kaffið í bænum?

Eðalkaffi, espresso, café latte, capuccino, machiato og margskonar te er hægt að fá á Torgi Neskirkju ásamt núybökuðu brauði og sætmeti.Kaffihúsið er opið alla virka daga nema laugardaga frá kl. 9-16. […]

By |2006-10-04T11:10:13+00:004. október 2006 11:10|

Líf og dauði í Hringsdal

Upprisa og eilíft líf, líkfylgd í Nain og í Reykjavík. Er útför okkar hafin? Er lífið allt ein samfelld líkfylgd? Séra Örn Bárður velti fyrir sér þessum spurningum og fleirum í prédikun sunnudagsins 1. október sem lesa má á annáli hans.

By |2006-10-01T20:52:50+00:001. október 2006 20:52|

Kjartan kvaddur og Sigurði Árna fagnað

Dr. Kjartan Jónsson, prestur og kristniboði, hefur þjónað í Neskirkju s.l. mánuð og leyst af dr. Sigurð Árna Þórðarson sem var í feðraorlofi. Kjartani eru þökkuð góð störf sem öll voru unnin af hans alkunnu elskusemi og gleði. Hann leysir nú af í Hafnarfjarðarkirkju og þjónar þar fram í nóvember.Við fögnum því að Sigurður Árni [...]

By |2006-10-01T09:17:28+00:001. október 2006 09:17|

Mannauður og samskipti á vinnumarkaði

Á morgnana er ys og þys í Neskirkju þegar meistaranámsnemendur við Háskóla Íslands streyma út á Torgið til að fá sér eðalkaffi, capuccino, machiato eða espresso ásamt nýbökuðu meðlæti. […]

By |2006-09-29T09:43:45+00:0029. september 2006 09:43|

Prédikanir, líkræður, pistlar, blogg

Prestar Neskirkju, Örn Bárður og Sigurður Árni, birta á annálum sínum margt af því sem þeir flytja við athafnir eða hafa þegar birt á prenti. Vísanir á annálana er að finna í hægri slánni á forsíðu vefsins.

By |2006-09-27T16:04:43+00:0027. september 2006 16:04|

Litla kúlan og sú stóra

Einhvern tímann heyrði ég haft eftir Churchill gamla fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands að hann hefði skilgreint golfíþróttina sem leik að tveimur kúlum - lítilli og stórri - og að kylfingurinn ætti að slá þá litlu. Skemmtileg túlkun á frábærum leik. Áfram á annál Arnar Bárðar ...

By |2006-09-27T15:07:40+00:0027. september 2006 15:07|