Vel heppnað busl á sumardaginn fyrsta.
Rúmlega eitthundrað manns mættu í sund að morgni sumardagsins fyrsta en Vesturbæjarlaugin bauð öllum ókeypis í sund. Neskirkja, skátafélagið Ægisbúar og NeDó héldu utan um stundina og mikil ánægja var meðal sundlaugagesta með þessa uppákomu. Myndirnar eru bjartar, líkt og að þær séu teknar um hásumar en það var napurt við bakkann í sólinni. [...]