Fréttir

Borðið féll en boðið stendur

Þegar húsin springa og jörðin rifnar opnast gáttir sálarinnar og burðarvirki anda manneskjunnar kemur í ljós. Sjómenn kunna að stíga öldu og nýtist þegar fastalandið gengur í bylgjum. Prédikun sr. Sigurðar Árna 1. júní 2008 var um boð, skjálfta, fallið altari og veislu í lífinu. Ræðan er undir þessari smellu.

By |2008-06-01T22:06:49+00:001. júní 2008 22:06|

Þér er boðið

Boðsmiðarnir eru útsendir. Allir velkomnir. Veislutexti í Biblíunni verður ræddur í prédikun 1. júní. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Meðhjálpari Rúnar Reynisson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Eftir messu verður súpa, brauð og kaffi á Torginu eftir messu. Þér er boðið í veisluna.

By |2008-05-29T21:53:15+00:0029. maí 2008 21:53|

Sumar í Neskirkju – 6-10 ára!

Barna- og unglingastarf Neskirkju verður með leikjanámskeið í sumar fyrir börn á aldrinum 6–10 ára (fædd 2002-1998). Námskeiðin eru viku í senn frá mánudegi til föstudags, klukkan 13–17. Á námskeiðunum gefst börnunum kostur á að kynnast kirkjunni og boðskap hennar í leik og starfi, auk þess að öðlast dýrmæt tengsl við nýja félaga. Myndir af [...]

By |2008-05-28T09:35:55+00:0028. maí 2008 09:35|

Ekkert gjald er tekið meðan beðið er

Alla miðvikudaga eru bænamessur í Neskirkju. Þær hefjast kl. 12,15 með ritingarlestri og íhugun. Eftir bænir er síðan altarisganga. Hægt er að koma fyrirbænum til prestanna eða starfsfólks kirkjunnar. Allir velkomnir.

By |2008-05-27T14:40:46+00:0027. maí 2008 14:40|

Jón Gnarr og ekkertsagan

Að refsa fyrir aðgerðaleysi! Jesús sagði sögu og Jón Gnarr notaði hugmyndina. Er aðgerðaleysi, það að gera ekkert, glæpur? Mun hið illa blómstra vegna skeytingarleysis okkar? Prédikun Sigurðar Árna 25. maí 2008 er á bak við þessa smellu.

By |2008-05-26T10:57:54+00:0026. maí 2008 10:57|

Að teygja sig á heimsenda

Í messunni 25. maí verður prédikað um manneðli og samskipti fólks. Messan hefst kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Almenn kirkjubæn: Ingibjörg R. Guðmundsdóttir. Meðhjálpari Úrsúla Árnadóttir. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Eftir messu verður súpa, brauð og kaffi á Torginu eftir messu. Allir velkomnir.

By |2008-05-23T13:45:54+00:0023. maí 2008 13:45|

Vorferð unglingastarfsins

Unglingastarf Neskirkju fór í vorferð á miðvikudagskvöldið 21. maí með ÆSKR. Leiðin lá á Úlfljótsvatn þar sem skátar tóku á móti okkur og veittu okkur aðstöðu til að grilla, hlaupa ratleik, fara út á báta og eiga góða stund við næstumþví varðeld (skátunum tókst ekki að kveikja upp). Við tókum að sjálfsögðu fullt af myndum [...]

By |2008-05-22T21:59:55+00:0022. maí 2008 21:59|

Fermingar 2009

Miðvikudaginn 21. maí kl. 10 hefst skráning fermingarbarna í Neskirkju og verður fram haldið kl. 10-16 alla virka daga. Skrá þarf samtímis námskeið og fermingardag. Sjá nánar hér!

By |2008-05-19T11:56:16+00:0019. maí 2008 11:56|

Opið hús – vorferð

Miðvikudaginn 21. maí n.k. verður farið í dagsferð í Reykholt í Borgarfirði. Staðarskoðun og veitingar. Lagt verður af stað kl 13.00 frá kirkjunni og er áætluð heimkoma milli 18.00 og 19.00. Farastjóri verður Hjörtur Pálsson, skáld og guðfræðingur. Skráning í s. 5111560

By |2008-05-19T11:54:09+00:0019. maí 2008 11:54|

Velheppnuð vorferð barnastarfsins

Sunnudaginn 18. maí var farin vorferð barnastarfsins og að þessu sinni heimsóttum við bæinn Sandgerði. Hópurinn var mjög heppinn með veður en hlýtt var og þurrt. Fyrst heimsóttum við fræðasetrið í Sandgerði og fræddumst þar um pólferðir franska prófessorsins J.C. Charcot og skip hans Pourquoi pas? Því næst skoðuðum við náttúrugripi setursins og grillum fyrir [...]

By |2008-05-18T20:40:30+00:0018. maí 2008 20:40|