Opið hús
Opið hús kl. 15. Sr. Þórhildur Ólafs sem nú þjónar í Neskirkju, er bæði prestur og prestsmaki.Hún mun segja frá sjálfri sér og lesa úr endurminningum frú Stefaníu Gissurardóttur. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi.
Opið hús kl. 15. Sr. Þórhildur Ólafs sem nú þjónar í Neskirkju, er bæði prestur og prestsmaki.Hún mun segja frá sjálfri sér og lesa úr endurminningum frú Stefaníu Gissurardóttur. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi.
Landsmót ÆSKÞ var haldið í Vestmannaeyjum síðastliðna helgi og voru 420 þátttakendur á mótinu. Farið var til Vestmannaeyja með Herjólfi á föstudögskvöldið og þar tók við látlaus dagskrá fram á miðjan dag á sunnudegi. Krakkarnir fengu að upplifa helgi Landakirkju, böll og kvöldvökur og fjölbreytt hópastarf þar þau gátu valið siglingu, sprang, föndur, tónliststarstarf, leiklist, [...]
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Magnús Ragnarsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Toshiki Toma. Messuþjónar aðstoða. Sögur, söngur, brúður og leikir í barnastarfinu. Umsjón María, Ævar og Andrea. Súpa, brauð, kaffi og samfélag eftir messu á Torginu. Prédikunina er hægt að [...]
Á foreldramorgni fimmtudaginn 15. október mun Helga Margrét Guðmundsdóttir verkefnastjóri frá Heimili og skóla koma í heimsókn. Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga kl. 10 - 12.
Í Opna húsinu miðvikudaginn 14. október mun Ingibjörg R. Guðmundsdóttir tala um lífið og þjóðlífið. Ingibjörg er varaforseti ASÍ og formaður sóknarnefndar Neskirkju. Opið hús byrjar kl. 15. með kaffiveitingum á Torginu.
Bestu þakkir til ykkar sem létuð fé af hendi rakna í messunum 4. og 11. okt. s.l. en þá söfnuðust kr. 76.093.- sem skilað hefur verið Hjálparstarfs kirkjunnar þar sem þörfin er mikil.
Prédikun sunnudagsins 04. október sem flutt var af Sigurvini Jónssyni, umsjónarmanns barna- og unglingastarfs Neskirkju er nú aðgengileg á trú.is
Það var öflugur hópur krakka úr æskulýðsfélaginu Fönix sem tók þátt í Þraukakeppni ÆSKR sl. fimmtudag en strákarnir úr hópnum skipuðu sigurliðið. Myndir af viðburðinum eru á myndasíðu BaUN en myndbandið inniheldur viðtöl við glaðbeitta sigurvegara.
Messa og barnastarf kl. 11. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson þjónar fyrir altari ásamt Þórhildi Ólafs. Sigurvin Jónsson umsjónamaður barna- og unglingastarfs Neskirkju prédikar. Messuþjónar aðstoða. Í messunni verða tekin samskot til styrktar innanlandsaðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar. Barnastarfið á sama tíma í umsjón í umsjón María og Ari. Sögur, söngur, [...]
Á myndasíðu barnastarfsins er nú aðgengileg fjöldi mynda frá upphafi annarinnar. Frá Sunnudagaskólanum, skemmtilegum Fönix fundum, fordómafræðslu í Skálholti, haustlitaferð Krakkaklúbbsins og ferð Undralands, frístundaheimilis Grandaskóla, í Seltjarnarneskirkju. Njótið þess að bera baunaspírurnar í barnastarfinu augum. Sigurvin Jónsson umsjónarmaður BaUN.