Fréttir

Opið hús miðvikudaginn 23. febrúar

Opið hús kl. 15. Framtíð kirkjunnar. Djúptækar og róttækar breytingar eru að verða á trúarafstöðu og kirkjuafstöðu á Vesturlöndum. hverjar eru þær og hverjar verða afleiðingar fyrir kirkjulíf á Íslandi. Sigurður Árni Þórðarson, Neskirkjuprestur, spáir í þróunina. Kaffiveitingar í upphafi á Torginu.

By |2011-02-22T10:46:25+00:0022. febrúar 2011 10:46|

Tónleikar – Frumflutt ný verk

Næstkomandi þriðjudagskvöld, 22. febrúar, verða tónleikar í Neskirkju undir yfirskriftinni “Herra mig heiman bú” þar sem flutt verða eingöngu verk eftir Steingrím Þórhallsson organista við Neskirkju. Steingrímur stundar nú nám í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands og voru öll verkin samin á síðastliðnum tveimur árum. Fram koma Kór Áskirkju undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar, málmblásarakvintettinn “Yobo habeva” [...]

By |2017-04-26T12:23:46+00:0018. febrúar 2011 13:04|

Messu 20. febrúar

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Þorvaldur Víðisson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Margrét Rós og Þórður. Samfélag og veitingar á Torginu eftir mess

By |2011-02-17T14:36:38+00:0017. febrúar 2011 14:36|

Opið hús miðvikudaginn 16. febrúar

Opið hús kl. 15. Það skiptir mig máli. Þorvaldur Víðisson er á leið til Noregs til að vera prestur í nágrenni Þrándheims en hann var áður miðbæjarprestur. Þorvaldur segir okkur frá því sem skiptir hann mestu máli í lífinu. Kaffiveitingar í upphafi á Torginu. Dagskrá í Opnu húsi.

By |2011-02-15T09:52:09+00:0015. febrúar 2011 09:52|

Ofurhetja

Ofurhetjurnar tjá óskir í dulvitund, en Jesús er veruleiki lífsins. Ofurhetjur birtast ekki í raunveruleikanum, en þar er Jesús Kristur. Hetjurnar eru sem neyðaróp sálar en Jesús er svar lífsins. Prédikun á ummyndunarsunnudegi, síðasta sunnudegi eftir þrettánda, 13. febrúar, 2011, er að baki smellunni.

By |2017-04-26T12:23:46+00:0013. febrúar 2011 20:59|

Messa 13. febrúar

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Gunnsteinn Ólafsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Toshiki Toma. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.

By |2011-02-11T09:17:02+00:0011. febrúar 2011 09:17|

Hvað syngur í mér?

Opið hús miðvikudaginn 9. febrúar. Kristín Þórunn Tómasdóttir tekur með sér gítarinn í Neskirkju, syngur, spilar og deilir með okkur gleðiefnum sínum í lífinu. Hún er héraðsprestur í Kjalarnesprófastsdæmi, sérfræðingur í helgihaldi, hefur verið fulltrúi íslensku kirkjunnar í stjórn Lútherska heimssambandsins. Opið hús er alla miðvikudag kl. 15. Kaffiveitingar í upphafi á Torginu.

By |2011-02-07T12:30:47+00:007. febrúar 2011 12:30|

María í messu 6. febrúar

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. María Ágústsdóttir héraðsprestur prédikar. Dr. Sigurður  Árni Þórðarson þjónar fyrir altari ásamt sr. Toshiki Toma. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag, veitingar og kaffi á Torginu eftir messu.

By |2011-02-03T11:09:25+00:003. febrúar 2011 11:09|

Guðni Ágústsson í Opnu húsi

Í Opnu húsi miðvikudaginn 2. febrúar kemur Guðni Ágústsson, fv. ráðherra í heimsókn. Margt hefur verið eftir honum haft og ýmis tilsvör hans hafa flogið víða. Guðni rær á gleðimiðin, segir frá ýmsu skondnu og skemmtilegu, ljóðar jafnvel ef andinn blæs honum í brjóst. Opið hús hefst kl. 15 með kaffiveitingum á Torginu.

By |2011-02-01T09:51:41+00:001. febrúar 2011 09:51|

Amen

Ástin leitar hins heildstæða, bænin leitar hins altæka. Bæn varðar ekki aðeins uppfyllingu einhverrar kröfu eða óskar, heldur að opna lífið fyrir vori lífsins. Bæn er ekki aðeins það að biðja um lausn í einstökum málum og vandkvæðum, heldur að vilja, vona og tjá að lífið sé allt í hendi Guðs. Prédikun Sigurðar Árna 30. [...]

By |2017-04-26T12:23:46+00:0030. janúar 2011 18:16|