Fréttir

Líf úr rosa

Hvað sleit þér mest í tengslum við ástvini þína, foreldra, börn, maka, vini? Hvað hafði dýpst og sterkust áhrif á tilfinningar þínar og líðan? Hver er krísan - hver er lausnin? Prédikun Sigurðar Árna síðasta sunnudag kirkjuársins, 21. nóvember, er að baki smellunni.

By |2011-11-21T21:33:32+00:0021. nóvember 2011 21:33|

Krísa til lífs – í messu 20. nóvember

Síðasti sunnudagur kirkjuársins. Messa og barnastarf kl. 11 og sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Guðspjallið fjallar um dóm, krisis, og prédikarinn fjallar um þá krísu. Messuþjónar aðstoða í athöfninni. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. [...]

By |2011-11-18T10:05:42+00:0018. nóvember 2011 10:05|

Íslendingar með augum útlendinga

Opið hús miðvikudaginn 16. nóvember. Ólafur Davíðsson fyrrum ráðuneytisstjóri og sendiherra lauk starfsævinni sem sendiherra í Berlín. Áður   starfaði hann sem ráðuneytisstjóri í 13 ár. Trúnaðarstörfin og samskipti við fulltrúa erlendra þjóða, hvernig ganga þau fyrir sig? Vangaveltur í kjölfar viðburðarríkrar starfsævi. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15 og hefst með kaffiveitingum á [...]

By |2011-11-15T11:43:11+00:0015. nóvember 2011 11:43|

Messa 13. nóvember

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.

By |2011-11-11T13:44:18+00:0011. nóvember 2011 13:44|

Grundvallarreglur og fagnaðarerindi

Opið hús miðvikudaginn 9. nóvember. Stjórnlagaráð skilaði til Alþingis frumvarpi að nýrri stjórnarskrá. Athygli vakti vinnulag ráðsins og að allir ráðsmenn samþykktu drögin. Örn Bárður Jónsson, sóknarprest-ur Neskirkju, var í hópi 25 þingmanna, sem störfuðu í Stjórnlagaráði og segir okkur frá vinnulagi og anda stjórnarskrártillögunnar. Opið hús er alla miðvikudag og hefst kl. 15 með [...]

By |2011-11-08T10:29:07+00:008. nóvember 2011 10:29|

Salt og ljós fyrir lífið

Jesús sagði ekki að við ættum að ganga um og safna nammi, heldur væri hlutverk okkar að verða krydd, selta veraldar. Hann sagði ekki að við ættum setja ljósið okkar inn í grasker heldur leyfa því að lýsa öðrum. Við erum ljósasól á fjalli í sambandi við orkubú veraldar. Prédikun Sigurðar Árna á allra heilagra [...]

By |2017-04-26T12:23:36+00:006. nóvember 2011 17:45|

Allra heilagra messa 6. nóvember

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Í messunni verður látinna minnst og þeir sem koma til messu geta kveikt á kertum til minningar. Félagar úr Kór Neskirkja leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson.  Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Vigfúsi Ingvari Ingvarssyni. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í [...]

By |2011-11-04T10:00:53+00:004. nóvember 2011 10:00|

Biblíumatur

Föstudaginn 4. nóvember verður boðið upp á fiskiveislu á Torginu. Silungur verður borinn fram eins og kannski var í Cesareu eða einhverju þorpinu við Galíleuvatn. Máltíðin hefst kl. 12 og kostar 1500 krónur.

By |2011-11-04T09:03:02+00:004. nóvember 2011 09:03|

Hæfileikar í NeDó!

Síðastliðna helgi fór æskulýðsstarf Neskirkju og Dómkirkju á Landsmót ÆSKÞ en árlegur viðburður á mótinu er hæfileikakeppni æskulýðsfélaga. Vinkonurnar Helena Hafsteinsdóttir og Anna Karen Pálsdóttir voru framlag NeDó í ár en þær sungu lagið Little talks með íslensku hljómsveitinni Of monsters and men.

By |2017-04-26T12:23:36+00:003. nóvember 2011 19:32|