Fréttir

Atli Heimir Sveinsson

Krossgötur miðvikudaginn 7. maí kl. 13.30. Lífið og listin. Hvaðan kemur tónlistin? Hvernig vinnur tónskáldið? Trúin og lífið. Atli Heimir Sveinsson, tónskáld kemur í heimsókn. Kaffiveitingar

By |2014-05-05T14:27:18+00:005. maí 2014 14:27|

Messa og aðalsafnaðarfundur 4. maí

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt dr. Sigurði Árna Þórðarsyni.Fermd verður Dagbjört Ellen Júlíusdóttir. Dr. Rodney Petersen, forstöðumaður Bostan Theological Institute og dr. Raymond Helmick, Jesúitaprestur og sáttsemjari í alþjóðlegum deilumálum, flytja ávörp. Eftir messu [...]

By |2014-04-30T13:25:06+00:0030. apríl 2014 13:25|

Aðalasafnaðarfundur 4. maí

Aðalsafnaðarfundur Nessóknar verður haldinn sunnudaginn 4. maí kl. 12.20, að lokinni sunnudagsmessu safnaðarins, í safnaðarheimili kirkjunnar. Venjuleg dagskrá aðalsafnaðarfundar. Alli velkomnir. Sóknarnefnd Neskirkju

By |2014-04-29T11:34:10+00:0029. apríl 2014 11:34|

Vatnaskógur

Krossgötur miðvikudaginn 30. apríl kl. 13.30. Upphaf sumarbúða í Vatnaskógi. Þórarinn Björnsson er guðfræðingur og bókasafnsfræðingur og hefur rannsakað sögu Vatnasógar og upphafsára KFUM-hreyfingarinnar. Kaffiveitingar.

By |2014-04-29T10:57:18+00:0029. apríl 2014 10:57|

Messa sunnudaginn 27. apríl

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |2014-04-25T09:49:16+00:0025. apríl 2014 09:49|

Hvað leiddi þig til starfa í Neskirkju?

Krossgötur miðvikudaginn 23. apríl kl. 13.30. Þáttur trúarinnar í daglegu lífi. Hlutverk kirkjunnar. Hlutverk Neskirkju í lífi vestur-bæinga. Bendedikt Sigurðsson, lögfræð-ingur og fv. formaður sóknarnefndar Neskirkju. Kaffiveitingar.

By |2014-04-23T09:17:02+00:0023. apríl 2014 09:17|

Helgihald í dymbilviku og um páskana

Skírdagskvöld Messa kl. 20.00. Við lok messunnar verður altarið afskrýtt og á það lagðar 5 rósir sem tákn um sármerki Krists. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Föstudagurinn langi Guðsþjónusta kl. 11.00. Jón Sigurðsson fv. skólastjóri á Bifröst prédikar. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur [...]

By |2014-04-15T15:44:33+00:0015. apríl 2014 15:44|

Síðasti saltfiskdagur ársins

Síðasti saltfiskdagur Neskirju að þessu sinni verður föstudaginn 11. apríl kl. 12. Suðrænn saltfiskur - bacalao - verður á borðum og kostar kr. 1.500 með ofnbökuðum rótarávöxtum. Borðum hollan mat á föstunni og aukum fiskneyslu!

By |2017-04-26T12:23:22+00:0010. apríl 2014 19:36|

Pálmasunnudagur

Hátíðarmessa og barnastarf kl. 11. Kirkjudagur Neskirkju. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |2014-04-10T11:32:29+00:0010. apríl 2014 11:32|