Fréttir

Messa á Biblíudeginum 8. febrúar

Messa og barnastarf á Biblíudaginn kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Katrín Helga og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu. Fulltrúar frá Gídeon munu gefa fermingarbörnum Nýja [...]

By |2017-04-26T12:23:17+00:005. febrúar 2015 11:14|

Krossgötur 4. febrúar

Krossgötur miðvikudaginn 4. febrúar kl. 13.30. Íhugunarbæn. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir hefur haldið námskeið um og iðkað kristna íhugun og gerir okkur grein fyrir eðli og gagnsemd hennar. Kaffiveitingar. Krossgötur er alla miðvikudaga kl. 13.30. Hægt er að sjá dagskrá vorsins hér!

By |2017-04-26T12:23:17+00:003. febrúar 2015 09:20|

Nýr prestur í Neskirkju

Biskup Íslands hefur ákveðið að skipa dr. Skúla Sigurð Ólafsson í embætti prests í Nesprestakalli í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Síðustu ár hefur dr. Skúli verið sóknarprestur í Keflavíkurprestakalli.  Hann hefur áður starfað sem settur sóknarprestur í Ísafjarðarprestakalli, prestur Íslendinga í Svíþjóð og þar áður sem prestur við Ísafjarðarprestakall. Við bjóðum Skúla velkominn til starf hér í kirkjunni.

By |2017-04-26T12:23:17+00:001. febrúar 2015 13:39|

Messa 1. febrúar

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Jakob Á. Hjálmarsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Sigurvin, Katrín Helga og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |2015-01-29T14:51:02+00:0029. janúar 2015 14:51|

Kærleiksþjónusta

Krossgötur miðvikudaginn 28. janúar kl. 13.30. Ragnheiður Sverrisdóttir hefur um árabil farið fyrir í þróun og skipulagi kærleiksþjónustu kirkjunnar og mun leggja fyrir okkur grundvöll þeirrar þjónustu og hvernig staðan er i dag. Kaffiveitingar. Sjá dagskrá fyrir vorið!

By |2015-01-27T09:37:20+00:0027. janúar 2015 09:37|

Messa 25. janúar

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestarnir Sigurvin L. Jónsson og Jakob Á. Hjálmarsson þjóna og prédika saman. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Ásta Kristensa, Katrín Helga og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |2015-01-22T13:36:15+00:0022. janúar 2015 13:36|

Völuspá

Krossgötur miðvikudaginn 21. janúar kl. 13.30. Dr. Pétur Pétursson hefur fært rök fyrir nýrri túlkunaraðferð á Völuspá og tengir hana minnum og heildarbyggingu helgimynda miðalda.Hann sýnir dæmi um þær máli sínu til stuðnings. Kaffiveitingar. Sjá vordagskrá fyrir vorið!

By |2015-01-20T11:56:12+00:0020. janúar 2015 11:56|

Messa 18. janúar

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Sigurvin, Andrea Ösp, Katrín Helga og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |2015-01-15T13:16:16+00:0015. janúar 2015 13:16|

Krossgötur að hefjast á ný

Krossgötur miðvikudaginn 14. janúar kl. 13.30. Kaldalóns, Gt. og lífið. Gunnlaugur A. Jónsson er prófessor í Gamlatestamentisfræðum og barnabarn Sigvalda Kaldalóns, læknis og tónskálds. Hann hefur fjallað um ævi og list Sigvalda í fyrirlestrum með tóndæmum. Kaffiveitingar.

By |2015-01-13T10:55:37+00:0013. janúar 2015 10:55|

Að vera barnaleg

„Sú hugmynd Jesú að fullorðnir einstaklingar þurfi að taka við guðsríkinu eins og börn, hefur því verið róttæk og sláandi í hugum hinna fyrstu áheyrenda og er enn. Til að mega ganga inn í það ríki þurfum við að endurfæðast og verða á ný eins og börn.” Prédikun Sigurvins sunnudaginn 11. janúar er að baki [...]

By |2017-04-26T12:23:17+00:0011. janúar 2015 13:14|