Næsta sunnudag skartar kirkjan skrautlegum steinum í bland við þá eðalsteina sem sækja helgihald kirkjunnar. Sunnudagaskólahópurinn málaði bænasteina síðasta sunnudag sem verða sýndir í safnaðarheimilinu. Þá hefur æskulýðsfélagið okkar þæft litríka steina sem að þau eru að selja til að komast á Landsmót æskulýðsfélaga í næsta mánuði. Komum til kirkju og styðjum við bakið á lifandi steinum.