Helgina 15.-17. október næstkomandi verður haldið Landsmót æskulýðsfélaga á Akureyri. Mótið er á hverju ári stærsti viðburður í æskulýðsstarfi kirkjunnar og mótið í ár verður eitt það veglegasta til þessa. Ef að þú ert á aldrinum 14-17 ára og langar að slást í hópinn sem fer á Landsmót er um að gera að mæta á fund hjá æskulýðsfélagi Neskirkju Fönix á þriðjudag kl. 19.30. Allir velkomnir.