„Leyfið börnunum að koma…“
Stór börn og lítil athugið: Hin árlega æskulýðsmessa verður á sunnudaginn, 4. mars kl. 11 í Neskirkju. Fermingabörn vorsins leiða messuna í samvinnu við séra Ásu Laufeyju, æskulýðsfulltrúa og Katrínu Helgu. Barnakórar syngja undir stjórn Þórdísar Sævarsdóttur. Stórir sem smáir, aldnir sem ungir og litlar og stórar fjölskyldur. Við hlökkum [...]
Ársæll Arnarson, sálfræðingur: Síðustu ár sálarinnar. Hvað varð um sálina í menningunni?
Krossgötur miðvikudaginn 27. febrúar kl. 13.00. Ársæll Arnarson, sálfræðingur: Síðustu ár sálarinnar. Hvað varð um sálina í menningunni? Kaffiveitingar. Í hádeginu er hægt að fá súpu og brauð á góðu verði.
Messa 25. febrúar
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum syngja. Organisti Gunnsteinn Ólafsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Gleði og gaman í sunnudagaskólanum. Umsjón Ása Laufey, Katrín, Heba og Ari. Samfélaga og kaffisopi eftir messu á Torginu.
Krossgötur 20. febrúar
Kr0ssgötur miðvikudaginn 20. febrúar kl. 13.00. Jónína Ólafsdóttir, guðfræðingur: Lífshlaup, trúarafstaða og baráttumál Ólafíu Jóhannsdóttur og Aðalbjargar Sigurðardóttur, kvenréttindafrömuða. Kaffi og kruðerí. Í hádeginu er boðið upp á súpu á vægu verði.
CRUX
Sjónlistaráð Neskirkju býður til opnunar myndlistarsýningarinnar Crux með verkum eftir hollenska listamanninn Kees Visser. Dagskráin hefst með messu kl. 11 þar sem fjallað verður um verkin og sýninguna. Sjálf opnunin verður svo að messu lokinni.
Fyrsti sunnudagur í föstu
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Gleði og gaman í sunnudagaskólanum. Umsjón Ása Laufey og Ari. Eftir messu verður myndlistarsýningin Crux opnuð en á henni eru verk eftir hollenska listamanninn Kees Visser.
Piltur og stúlka
Krossgötur þriðjudaginn 13. ferbrúar kl. 13.00. Már Jónsson, sagnfræðingur segir frá nýri útgáfu á Pilti og stúlku í tilefni af 200 ára afmæli höfundarins. Kaffi og kruðerí. Í hádeginu verður boðið upp á saltkjöt og baunir á vægu verði.
Messa og barnastarf kl. 11 – ATH við messum!!
Tilkynning: Messa og barnastarf að venju. Fólk er beðið að meta veður út frá eigin aðstæðum. Messa kl. 11. Umfjöllunarefni er merking skírnarinnar í sögu og lífi. Kór Neskirkju syngur og leiðir söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Barnastarfið hefst í kirkjunni og færist [...]
Krossgötur 6. febrúar
Krossgötur þriðjudaginn 6. ferbrúar kl. 13.00. Margrét Eggertsdóttir, íslenskufræðingur: Hallgrímur Pétursson á lönguföstu. Kaffi og kruðerí. Krossgötur eru alla þriðjudaga fram á vor. Góðir gestir heimsækja okkur og deila með okkur sögum og fróðleik úr ýmsum áttum. Í hádeginu má kaupa máltíð á hagstæðu verði. Dagskrá fram á vor!
Messa 4. febrúar
Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Gleði og gaman í sunnudagaskólanum. Umsjón Ása Laufey, Heba og Ari. Kaffi og samfélag eftir messu á Torginu.