Hljóð, ljóð og sjón
Næsta fimmtudag 7. febrúar kl. 18 verður þriðja Skammdegisbirtu daskráin. Boðið verður upp á barokk ábreiður, sagt frá fjölbreyttum listferli Gerðar Helgadóttur og ljóðskáldið Haukur Ingvarsson veltir fyrir sér spurningum sem varða trú og trúleysi. Og svo verður að venju boðið upp á súpu og drykki. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar [...]
Einelti
Krossgötur þriðjudaginn 5. febrúar kl. 13.00. Kristjana M. Sigmundsdóttir og Þorlákur Helgi Helgason, baráttufólk gegn einelti. Elta minningarnar okkur ævina út? Um einelti í æsku. Kaffiveitingar.
Messa og sunnudagaskóli 3. febrúar
Sunnudagurinn 3. febrúar er bænadagur að vetri. Þann er er að venju messa og sunnudagaskóli kl. 11. Við hefjum stundirnar saman inni í kirkju en barnastarfið færir sig síðan yfir í safnaðarheimilið. Kór Neskirkju syngur í messunni og leiðir söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir predikar [...]
Kyrrðarbæn – námskeið
Dagsnámskeið um Kyrrðarbæn (Centering Prayer) verður haldið í Neskirkju þann 2. febrúar frá kl. 10 – 15. Kyrrðarbæn er íhugunaraðferð úr kristinni hefð sem hefur verið stunduð í einhverri mynd frá frumkristni. Á námskeiðinu verður fjallað um þessa íhugunaraðferð, hún kennd og iðkuð. Kyrrðarbæn er afar einföld iðkun sem gengur út á [...]
Heimsókn í Þjóðminjasafnið
Krossgötur þriðjudaginn, 29. janúar kl. 13.00. Sýningin Kirkjur Íslands opnar í Þjóðminjasafninu í tilefni þess að lokið er útgáfu samnefndrar ritraðar. Þar er að finna merkilegar myndir og heimildir af íslenskum kirkjum. Hópurinn hittist fyrst í Neskirkju og fær sér hressingu.
Messa 27. janúar
Messa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúi S. Ólafsson. Sögur, söngur, gleði og gaman í sunnudagaskólanum. Umsjón Katrín Helga Ágústsdóttir, Margrét Heba Atladóttir og Ari Agnarsson. Umsjón Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Núvitund og vellíðan
Krossgötur þriðjudaginn 22. janúar kl. 13.00. Bryndís Jóna Jónsdóttir, aðjúnkt við Háskóla Íslands og umsjónarmaður Nútvitundarsetursins fjallar um úvitund og vellíðan. Kaffiveitingar og samsöngur.
Messa 20. janúar
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Söngur, sögur og gleiði í barnastarfinu. Umsjón Katrín Helga Ágústsdóttir, Margrét Heba Atladóttir og Ari Agnarsson. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Stormur í aðsigi
Krossgötur þriðjudaginn 15. janúar kl. 13.00. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, spjallar um veðrið í fortíð og framtíð. Boðið upp á kaffiveitingar.
Messa 13. janúar
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. María Krístín Jónsdóttir situr við orgelið. Prestar sr. Skúli S. ÓIafsson. Söngur, sögur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Katrín Helga Ágústdóttir, Margrét Heba Atladóttir og Ari Agnarsson. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.