Guðsþjónustur og sunnudagaskóli fellur niður
Guðsþjónustur og sunnudagaskóli fellur niður pálmasunnudag, bænadagana og páska. Annað hefðbundið safnaðarstarf í páskaviku fellur einnig niður. Þessi ákvöruðun er tekin í ljósi hertra sóttvarna og þess hve bráðsmitandi þau afbrigði veirunnar eru sem nú eru að dreifa sér hér á landi. Hugvekjur verða sendar út á fésbókarsíðu kirkjunnar. Við [...]
Krossgötur
Krossgötur þriðjudaginn 23. mars kl. 13.00. Elísabet Gunnarsdóttir, listfræðingur kemur í heimsókn og segir okkur frá dvöl sinni á Nýfundnalandi þar sem hún stýrði listasafni. Kaffi og kruðerí.
Sunnudagurinn 21. mars
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Söngur og sögur í sunnudagaskólanum sem er í umsjá Hildu Maríu Sigurðardóttur, Kristrúnar Guðmundsdóttur og Ara Agnarssonar sem annast undirleik. Kaffi og samfélag á torginu að [...]
Meira um Matthías
Krossgötur þriðjudaginn 16. mars kl. 13.00. Sr. Skúli S. Ólafsson fjallar um skáldið og prestinn Matthías Jochumsson. Kaffiveitingar.
Sunnudagurinn 14. mars
Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Sunnudagaskólinn hefst kl. 11. Hrafnhildur Guðmundsdóttir leiðir stundina og Ari Agnarsson leikur undir. Þar verður söngur og gleði og sögur. Kaffi og samfélag á Torginu að stundunum loknum.
Æskulýðsdagurinn 7. mars
Fjölskylduguðsþjónusta með léttum brag kl. 11 á Æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar. Drengjakór Reykjavíkur syngur undir stjórn Þorsteins F. Sigurðssonar. Fermingarbörn og starfsfólk barna- og æskulýðsstarfs aðstoða í helgihaldi. Undirleikari er Ari Agnarsson og prestur sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.
Sunnudagurinn 28. febrúar
Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Kjartan Hugi Rúnarsson leikur á saxófón. Prestur er Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Sunnudagaskólinn hefst kl. 11. Hilda María Sigurðardóttir og Hrafnhildur Guðmundsdóttir leiða hann og Ari Agnarsson leikur undir. Þar verður söngur og gleði og [...]
Biblíuleshópur kvenna – opinn öllum konum
Á þriðjudögum kl. 18 leiðir sr. Steinunn Arnþrúður biblíulestur með konum. Lesnir eru valdir textar og ræddir. Að auki er fræðsla um Biblíuna, tilurðarsögu, það samfélag sem hún varð til í og túlkunarsögu. Allar konur eru velkomnar. Hver samvera tekur um eina klukkustund.
Guðsþjónusta og sunnudagskóli 21. febrúar
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Gengið er beint inn í kirkjuna um aðaldyr kirkjunnar. Sunnudagskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu. Söngur, leikir, sögur og gleði. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir, Sóley Anna Benónýsdóttir og Ari Agnarsson. Gengið er beint inn í safnaðarheimilið.
Neskirkja auglýsir eftir organista til afleysingar
Laus er til umsóknar staða organista í Neskirkju, Reykjavík, til afleysinga í eitt ár. Um er að ræða fulla stöðu. Skilyrði er að umsækjendur hafi lokið kantorsprófi og hafi víðtæka þekkingu og reynslu af að vinna með kór. Starfskjör, réttindi og skyldur eru skv. kjarasamningi Launanefndar Þjóðkirjunnar og FÍO/organistadeildar FÍH. [...]