Skráning í fermingarfræðslu er hafin
Skráning í fermingarfræðslu vegna ferminga vorið 2022 er hafin. Vaskur hópur presta og annars starfsfólks tekur vel á móti unga fólkinu. Sumarnámskeið hefst með kynningu þann 15. ágúst og svo verður kennt 16. - 19. ágúst. Að auki eru samverur yfir veturinn. Ferð í Vatnaskóg er helgin 10. - 12. september [...]
Kristnir, múslimar og bahá’íar hafa bænastund í safnaðarheimili Neskirkju
Þvertrúarleg bænastund verður í safnaðarheimili Neskirkju þann 5. Júní kl. 17, á degi samstöðu vegna Covid-19. Á stundinni koma saman kristnir, múslimar og bahá´íar og flytja bænir, hver úr sínum trúararfi. Kveikt verður á bænakertum. Stundin er öllum opin. Trúar- og lífsskoðunarfélög á Íslandi bjóða öllum landsmönnum að sameinast áþjóðardegi [...]
Vortónleikar Kór Neskirkju
Kór Neskirkju mun fagna vori og batnandi tíð með tónleikum miðvikudagskvöldið 2. júní kl 20:00 í Neskirkju. Flutt verða nokkur verk eftir ýmis tónskáld. Má þar nefna endurreisnartónskáldið G.P. da Palestrina, hinn alkunnuga J.S. Bach og síðast en ekki síst Steingrím Þórhallsson, stjórnanda kórsins. Meðal verka eftir þann síðastnefnda eru lög sem [...]
Guðsþjónusta og barnastarf 16. maí
Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organsiti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Sunnudagskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu og er gengið beint þangað inn. Söngur, gleði og gaman. Umsjón Sóley Anna Benónýsdóttir, Hrafnhildur Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Athugið að þetta er síðasti [...]
Aðalsafnaðarfundur Nessóknar
Aðalsafnaðarfundur Nessóknar verður haldinn sunnudaginn 16. maí kl. 9.30 í safnaðarheimili kirkjunnar. Venjuleg dagskrá aðalsafnaðarfundar. Sóknarnefnd Neskirkju.
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli 9. maí
Sunnudagaskóli og guðsþjónusta kl. 11, 9. maí. Þetta er hinn almenni bænadagur og í guðsþjónustunni verður því fjallað um bænir á ýmsan hátt. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Guðsþjónustan er í safnaðarheimilinu og er gengið beint þangað [...]
Krossgötur
Krossgötur verða þriðjudaginn 4. maí að venju kl. 13.00. Sr. Skúli S. Ólafsson sér um spennandi efni sem þátttakendur á Krossgötum hafa óskað eftir að verði fjallað um. Kaffiveitingar að hætti hússins! Allir velkomnir.
Sunnudagur 2. maí
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Guðsþjónustan er í kirkjunni, félagar úr Kór Neskirkju leiða söng með Steingrími Þórhallssyni organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Sunnudagaskólinn er í safnaðarheimili og er gengið beint inn í það. Umsjón hafa Kristrún Guðmundsdóttir og Hilda María Sigurðardóttir. Ari Agnarsson leikur undir af list [...]
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli 24. apríl
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Við guðsþjónustu leiða félagar úr Kór Neskirkju söng við undirleik Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Sunnudagaskólinn er í safnaðarheimili og er gengið beint þangað inn. Hilda María Sigurðardóttir og Hrafnhildur Guðmundsdóttir stýra honum ásamt Ara Agnarssyni undirleikara. Söngur, sögur og gleði. [...]
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli 18. apríl
Við opnum aftur! Sunnudaginn 18. apríl kl. 11 verður guðsþjónusta og sunnudagaskóli. Guðsþjónustan er í kirkjunni, félagar úr Kór Neskirkju leiða söng með Steingrími Þórhallssyni organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Þemað er hirðirinn. Sunnudagaskólinn er í safnaðarheimili og er gengið beint inn í það. Umsjón hafa Kristrún Guðmundsdóttir [...]