Við opnum aftur! Sunnudaginn 18. apríl kl. 11 verður guðsþjónusta og sunnudagaskóli.

Guðsþjónustan er í kirkjunni, félagar úr Kór Neskirkju leiða söng með Steingrími Þórhallssyni organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Þemað er hirðirinn.

Sunnudagaskólinn er í safnaðarheimili og er gengið beint inn í það. Umsjón hafa Kristrún Guðmundsdóttir og Sóley Anna Benónýsdóttir. Ari Agnarsson leikur undir af list og að vanda verður gleði og gaman.