Tónleikar kl. 17 á Allra heilagra messu
Á Allra heilagra messu, þann 6. nóvember, flytur Kór Neskirkju Sálumessu (Requiem) eftir Gabriel Fauré í Neskirkju kl. 17. Tónleikarnir eru ókeypis. Auk Sálumessunnar verða flutt nokkur önnur verk sem eiga við á Allra heilagra messu, þegar látinna er minnst og kerti tendruð í bænarhug. Stjórnandi kórsins er Steingrímur Þórhallsson. [...]
Allra heilagra messa 6. nóvember
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11 á Allra heilagra messu. Í Guðsþjónustu verður látinna minnst og kveikt á kertum í minningu þeirra. Háskólakórinn syngur og leiðir söng undir stjórn Stefans Sand. Sunnudagaskóla stýrir Hrafnhildur Guðmundsdóttir. Hressing á torginu að lokinni guðsþjónustu.
Allir heilagir og allar sálir
Krossgötur 1. nóvember kl. 13.00. Steingrímur ,,maestro" Þórhallsson fjallar um þekktar sálumessur. Tilefnið eru tónleikar Neskirkju sunnudaginn 6. nóvember kl 17:00 þar sem Kór Neskirkju flytur sálumessu Fauré, væntanlega með tilþrifum. Kaffiveitingar.
Messa og barnastarf
Messa og barnastarf kl. 11. sunnudaginn 30. október. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Sögur, söngur og gleði í sunnudagskólanum. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Kaffisopi og samfélag á Torginu eftir messu.
Krossgötur 25. október
Krossgötur þriðjudaginn 25. október kl. 13.00. Sr. Skúli S. Ólafsson heldur áfram að fjalla um áhugverðar sögur úr Gamla testamenntinu. Kaffiveitingar.
Skammdegisbirta 23. október
Á Skammdegisbirtu í Neskirkju 23. október kl 18:00 er fjallað um jörðina og íbúa hennar. Þeir Stefán Jón Hafstein og Þórir Guðmundsson kynna nýútkomnar bækur sínar sem báðar fjalla um þetta efni þó efnistök séu ólík. Stefán Jón ræðir ástand jarðarinnar í bók sinni: Heimurinn eins og hann er. Þórir [...]
Guðsþjónusta 23. október
Sunnudaginn 23. október kl 11:00 opnum við sýningu Rúnars Reynissonar, ,,Heimaslóð" við guðsþjónustu í Neskirkju. Fjallað verður um verkin í predikun og gestum og gangandi er boðið upp á veitingar að helgihaldinu loknu. Þá er ný sálmabók komin í hús og verða sungnir úr henni sálmar sem ekki voru í [...]
Krossgötur 18. okt.
Krossgötur í Neskirkju þriðjudaginn 18. október kl 13:00. Hópurinn hittist í Neskirkju og þiggur kaffiveitingar. Að því loknu höldum við á bílum á Landnámssýninguna í Aðalstræti þar sem hópurinn verður leiddur um sýninguna.
Fjölskylduguðsþjónusta 16. október
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 sunnudaginn 16. október. Söngur, leikrit, gleði og guðsorð. Umsjón sr. Steinunn A. Björnsdóttir, Kristrún Guðmundsdóttir og starfsfólk sunnudagaskólans. Ari Agnarsson leikur undir söng. Hressing á Torginu að lokinni guðsþjónustu.
Krossgötur 11. okt.
Krossgötur þriðjudaginn 11. október kl. 13.00. Skírnin í kirkjunni. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir prestur í Neskirkju ræðir niðurstöður norrænna rannsókn á fækkun skírna og viðbrögðum við þeim. Kaffiveitingar.