Fréttir

Fréttir2017-04-26T12:23:05+00:00

Guðsþjónusta 23. október

Sunnudaginn 23. október kl 11:00 opnum við sýningu Rúnars Reynissonar, ,,Heimaslóð" við guðsþjónustu í Neskirkju. Fjallað verður um verkin í predikun og gestum og gangandi er boðið upp á veitingar að helgihaldinu loknu. Þá er ný sálmabók komin í hús og verða sungnir úr henni sálmar sem ekki voru í [...]

By |20. október 2022 12:06|

Krossgötur 18. okt.

Krossgötur í Neskirkju þriðjudaginn 18. október kl 13:00. Hópurinn hittist í Neskirkju og þiggur kaffiveitingar. Að því loknu höldum við á bílum á Landnámssýninguna í Aðalstræti þar sem hópurinn verður leiddur um sýninguna.

By |17. október 2022 10:56|

Fjölskylduguðsþjónusta 16. október

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 sunnudaginn 16. október. Söngur, leikrit, gleði og guðsorð. Umsjón sr. Steinunn A. Björnsdóttir, Kristrún Guðmundsdóttir og starfsfólk sunnudagaskólans. Ari Agnarsson leikur undir söng. Hressing á Torginu að lokinni guðsþjónustu.

By |13. október 2022 13:35|

Krossgötur 11. okt.

Krossgötur þriðjudaginn 11. október kl. 13.00. Skírnin í kirkjunni. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir prestur í Neskirkju ræðir niðurstöður norrænna rannsókn á fækkun skírna og viðbrögðum við þeim. Kaffiveitingar.

By |10. október 2022 11:27|

Sunnudagurinn 9. október

Messa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur og gleði í sunnudagskólanum. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Hressing og samfélag eftir stundirnar á Torginu.

By |6. október 2022 09:51|

Sálmar Davíðs

Krossgötur þriðjudaginn 4. október kl. 13.00. Eitt þekktasta rit Biblíunnar eru Davíðssálmarnir. Þeir eru sálmabókin sem Jesús leitaði í og í þeim er að finna fjölbreytt ljóð og texta frá ýmsum skeiðum í sögu Ísraelsríkis. Sr. Skúli S. Ólafsson fjallar um sálmana í heild sinni og staldrað við þá sem [...]

By |3. október 2022 12:16|

Messa 2. október

Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Háskólakórinn syngur og leiðir söng undir stjórn Stefans Sand. Prestur er Steinunn A. Björnsdóttir. Eftir sameiginlegt upphaf fer sunnudagaskólinn í safnaðarheimilið þar sem verður söngur og sögur. Umsjón hafa Kristrún Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson sem leikur undir söng. Hressing og samfélag eftir stundirnar á Torginu.

By |29. september 2022 13:58|

Davíð og Batsebu

Krossgötur þriðjudaginn 27. september kl. 13.00. Sr. Skúli S. Ólafsson heldur áfram að fjalla um Davíð konung. Nú verður sagt frá konungdómi Davíðs, sameiningu Suður- og Norðurríkjanna og Jerúsalem. Frásögnin af Davíð og Batsebu verður einnig til umfjöllunar. Kaffi og kruðerí.

By |26. september 2022 10:07|

Sunnudagur í Neskirkju

Messa og barnastarf sunnudagur 25. september kl. 11 Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Bjarni Þór Jónatansson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur og sögur í sunnudagaskólanum. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Kaffisopi og samfélag á Torginu eftir messu.

By |22. september 2022 11:36|