Jólastund barnanna kl. 16. Helgistund fyrir börn og fjölskyldur þeirra meðan beðið er eftir jólunum. Barnakór kirkjunnar syngur undir stjórn Steingríms Þórhallsonar. Viðstöddum býðst að taka þátt í að leika jólasöguna og við lifum okkur inn í gleði og hátíð jólanna. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir leiðir stundina ásamt Rúnari Reynissyni og starfsfólki barnastarfsins.