Fréttir

Fréttir2017-04-26T12:23:05+00:00

Spes-hjálparstarf

Miðvikudaginn 6. desember mun Njörður P. Njarðvík, prófessor emeritus, koma í Opið hús og segja frá hjálparstarfi Spes samtakanna í Afríku. Eins og venjulega eru kaffiveitingar kl. 15 en dagskráin hefst kl. 15.30. Dagskrá haustið 2006 er hægt að nálgast hér.

By |4. desember 2006 10:42|

Leiðin til Betlehem

Við upphaf aðventu koma ungir og aldnir saman í Neskirkju og hefja förina til Betlehem. Í messunni 3. desember kl. 11 sjá fermingarbörnin um helgileik, barnakórinn syngur og einnig Litli kórinn, kór eldri borgara. Í messulok verða kerti seld til styrktar Hjálparstarfi kirkjunnar. […]

By |2. desember 2006 09:38|

Tónað inn í aðventu

Nú fer að líða að lokum tónlistarhátíðar Neskirkju Tónað inn í aðventu. Föstudaginn 1. desember kl. 20. mun tónlistarhópurinn Rinascente flytja dagskrá tileinkuð ítölsku 17. aldar tónskáldunum Frescobaldi og Gabrieli. […]

By |29. nóvember 2006 13:10|

Fransmenn og Gerðargluggar

Í Opnu húsi miðvikudaginn 29. nóvember kemur Elín Pálmadóttir, blaðamaður í heimsókn. Kaffiveitingar kl. 15. Dagskráin hefst kl. 15.30. Allir velkomnir. […]

By |28. nóvember 2006 00:00|

U-beygja alltaf leyfð!

„Þegar mönnum verður alvarlega á í lífinu hefst margslungið ferli.“ Úr pistli Arnar Bárðar sem birtist í Vesturbæjarblaðinu nýlega. Meira hér:

By |27. nóvember 2006 19:35|

Hlakkar þú til endaloka heimsins?

Sköpunin stynur. Jörðin stynur undan okkur mannfólkinu. Veröldin öll er veröld Guðs og þegar hún þjáist, þjáist Guð. Hann lætur sig varða umgengni okkar við lífríkið og við náunga okkar. Guðspjall dagsins tekur í það minnsta af allan vafa um það síðarnefnda. . .Úr prédikun Arnar Bárðar sunnudaginn 26. nóv. [...]

By |26. nóvember 2006 15:55|

Flautað á Torginu

Seiðandi tónar, tangó og óramúsík hljómuðu á Torginu í Neskirkju í kvöld. Pamela de Sensi og Rúnar Þórisson léku og nutu aðstoðar leikaranna Sigurþórs Heimissonar og Halldóru Malín Pétursdóttur. […]

By |23. nóvember 2006 22:06|

Bænamessur alla miðvikudaga

Í dag verður fyrirbænamessa kl. 12.15 eins og alla aðra miðvikudaga ársins. Beðið er fyrir sjúkum og þeim sem óska fyrirbænar. Í lok samverunnar er altarisganga. […]

By |22. nóvember 2006 10:52|

Foreldramorgnar

Á næsta foreldramorgni, miðvikudaginn 22. nóvember, mun Jón Páll Hallgrímsson frá Regnbogabörnum koma í heimsókn og fjalla um einelti og afleiðingar þess. Foreldramorgnar eru alla miðvikudaga kl. 10.00.

By |21. nóvember 2006 10:41|