Fréttir

Fréttir2017-04-26T12:23:05+00:00

Bæn á degi gegn einelti 8. nóv. 2012

Kæri Guð sem sérð fólk, skilur og elskar – og tekur þér stöðu með þeim sem líða vegna eineltis. Styrk þau sem eru niðurlægð, vanvirt, hædd, hjálparlaus, misskilin og yfirgefin. Hjálpaðu þeim að treysta þér sem nærfærnum vini sem verndar. Gef okkur augu til að sjá, vitund sem nemur og [...]

By |8. nóvember 2012 14:29|

Messa 11.11. kl. 11

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Hljómur - kór eldri borgara í Neskirkju syngur undir stjórn Jóhönnu Halldórsdóttur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |8. nóvember 2012 13:50|

Opið hús miðvikudaginn 7. nóvember

Opið hús kl. 15.00. Guðrún Pétursdóttir, forstöðumaður stofnunar Sæmundar fróða kemur í heimsókn og ræðir um samband kynslóðanna. Kaffiveitingar í upphafi.

By |6. nóvember 2012 08:20|

Er einelti félagslegt lögmál?

Einelti er alvarlegt og aðkallandi vandamál meðal íslenskra ungmenna en einelti meðal barna og unglinga er afleiðing af þeirri valda- og ofbeldismenningu sem við búum við í samfélagi fullorðinna. Einelti er ekki síður stórt vandamál á vinnustöðum og í félagasamtökum fullorðinna og þar er vandinn mikið til falinn. Prédikun Sigurvins [...]

By |4. nóvember 2012 22:35|

Að standa gegn einelti!

Messa sunnudaginn 4. nóvember kl. 11 í Neskirkju. Þema messunnar er einelti og afleiðingar þess. Stúlknakór Neskirkju leiðir söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Sr. Sigurður Árni Þórðarsson þjónar fyrir altari og sr. Sigurvin Lárus Jónsson prédikar. Stöndum saman, með lífinu og gegn einelti.

By |2. nóvember 2012 16:57|

Heródesarkjúklingur

Hani Pílatusar er frægasti hani veraldar. En hæna Heródesar er síður kunn en hefur örgglega verið matreidd með kúnst fagurkerans. Hér er uppskrift að tilgátu-Heródesarkjúkling, sem verður eldaður í Neskirkju 2. nóvember og hefst máltíðin kl. 12 með kynningu og bæn. Föstudagar eru biblíumatardagar í Neskirkju. […]

By |1. nóvember 2012 21:08|

Biblíumatur á föstudögum

Á föstudögum er biblíumatur eldaður í Neskirkju. Reyndar voru tæplega tíu kg. af nautakjöti steikt og sett síðan í kryddblöndu þegar á fimmtudegi – til að marinera kjötið vel. Á borðum 26. október verður máltíð af því tagi sem gæti hafa verið elduð þegar týnda syninum var fagnað. Allir eru [...]

By |25. október 2012 21:44|

Messa 28. október

Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Halla Rut og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |25. október 2012 11:44|

Undrið í leigubílnum

Leigubílstjórinn sofnaði, bensínfóturinn seig og skyndilega var bíllinn kominn upp í 150. Íslenskir þingmenn, ökumaður og starfsmaður Alþingis í bráðri lífshættu. Hver og hvað bjargar á slíkri reisu? Eru englar meðal manna? Prédikun í Neskirkju 21. október - bæði texti og hljóðskrá - er að baki þessari smellu.

By |23. október 2012 14:42|

Opið hús

Opið hús miðvikudaginn 24. október kl. 15. Oddrún Kristjánsdóttir, umhverfisfræðingur og framkvæmdarstjóri fjallar um Rauða korssin í Reykjavík. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi.

By |23. október 2012 13:26|