Messa og barnastarf kl. 11. Sænski presturinn Elisabeth Gerle predikar og Arnfríður Guðmundsdóttir og Sigurður Árni Þórðarson þjóna fyrir altari. Háskólakórinn syngur undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. Sr. Gerle kennir mannréttindasiðfræði við Uppsalaháskóla. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón sr. Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.