Messur

Kyrrðarstundir hefjast

Miðvikudaginn 9. september kl. 12:00 hefjast kyrrðarstundir í Neskirkju. Þar gefst fólki kostur á að njóta fallegrar tónlistar, hlýða á Guðs orð og útleggingu á því, leggja bænir sínar í Drottins hendur og njóta svo veitinga á Kirkjutorgi, safnaðarheimili kirkjunnar. Prestar og organisti Neskirkju hafa umsjón með kyrrðarstundum.

By |2017-04-26T12:23:13+00:004. september 2015 14:55|

Safnað til stuðnings flóttamönnum

Biskup hefur hvatt söfnuði Þjóðkirkjunnar að efna til samskota í kirkjum landsins sunnudaganna 13. september og 20. september nk. til stuðnings Hjálparstarfi kirkjunnar í starfsemi sinni innan ACT – Alliance á Sýrlandi og Jórdaníu. Neskirkja mun ekki liggja á liði sínu. Ólafur og Guðrún ætla að elda súpu n.k. sunnudag. Við hvetjum fólk til að [...]

By |2017-04-26T12:23:13+00:004. september 2015 14:49|

Guðsþjónusta 30. ágúst kl. 11:00

Guðsþjónusta sunnudaginn 30. ágúst kl. 11:00. Steingrímur Þórhallsson er við hljóðfærið og leiðir söng félaga úr Kór Neskirkju. Kaffiveitingar á Kirkjutorgi að messu lokinni. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.

By |2017-04-26T12:23:13+00:0028. ágúst 2015 15:40|

Messa 9. ágúst kl. 11:00

Messað er í Neskirkju sunnudaginn 9. ágúst kl. 11:00. Kristín María Jónsdóttir situr við hljóðfærið og leiðir söng kórfélaga. Kaffi og sætabrauð að messu lokinni og auðvitað verðum við úti í garði ef veður leyfir. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.

By |2017-04-26T12:23:14+00:005. ágúst 2015 14:40|

Messa 5. júlí kl. 11:00

Sunnudaginn 5. júlí kl. 11:00 er messa í Neskirkju. Organistinn, Steingrímur Þórhallsson mætir tvíefldur til leiks að loknu sumarleyfi. Kórfélagar leiða sönginn. Kaffi verður drukkið og sætabrauð maulað á kirkjutorgi eða úti í sólinni ef sunnudagur stendur undir nafni. Í predikun verður fjallað um þessa yfirlýsingu Krists: ,,Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn [...]

By |2017-04-26T12:23:14+00:0029. júní 2015 12:56|

Messa, sunnudaginn 28. júní kl. 11:00

Sunnudaginn 28. júní, kl. 11:00 er að vanda messað í Neskirkju. Ef sunnudagur þessi stendur undir nafni ætlum við að hafa kaffihúsastemmningu og messa utandyra. Félagar úr Kór Neskirkju syngja, meðhjálparar taka þátt í athöfninni og boðið verður upp á molakaffi að messu lokinni. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.

By |2017-04-26T12:23:14+00:0022. júní 2015 11:08|

Guðsþjónusta í Neskirkju 21. júní

Sunnudaginn 21. júní kl. 11:00 er guðsþjónusta í Neskirkju. Guðspjallið fjallar um synina tvo (Lk. 15.11-32) og verður, í predikun dagsins, fjallað um synd, lögmál og fyrirgefningu. Félagar úr Kór Neskirkju leiða sönginn. Kirkukaffi verður drukkið í garðinum ef veður leyfir. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson

By |2017-04-26T12:23:14+00:0016. júní 2015 11:14|

Kórleysi og kinnroði í Neskirkju

Sunnudaginn 14. júní kl. 11:00 er guðsþjónusta í Neskirkju. Kórinn er á ferðlagi suður á Ítalíu ásamt Steingrími Þórhallssyni organista. Sérann verður ótengdur og ókóraður. Reiðum okkur á messugesti til söngs og svara! Í hugleiðingu dagsins verður fjallað um speki, heimsku, hrós og kinnroða.

By |2017-04-26T12:23:14+00:009. júní 2015 10:48|

Messa 7. júní kl. 11:00

Sunnudaginn 7. júní kl. 11:00 er að vanda messað í Neskirkju. Kórinn okkar mætir að þessu sinni, fullskipaður og syngur af lífi og sál undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Tónlistin verður því sérstaklega auðug og fjölbreytt en Kór Neskirkju heldur innan tíðar í söngferðalag til Ítalíu. Sjálfsagt verða enn eftir nokkur sumarblóm og ætmeti úr garðhýsi [...]

By |2017-04-26T12:23:14+00:002. júní 2015 12:10|