Messa sunnudaginn 11. september
Messa kl. 11:00. Kaffi og samfélag á Kirkjutorgi að messu lokinni. Félagar í Kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhalssonar organista. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.
Messa kl. 11:00. Kaffi og samfélag á Kirkjutorgi að messu lokinni. Félagar í Kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhalssonar organista. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.
Foreldramorgnarnir vinsælu hefjast að nýju í Neskirkju þann 8. september og eru frá 10 - 12. Þeir eru vettvangur fyrir foreldra með ung börn. Umsjón hefur Nína Agnarsdóttir.
Messa og sunndagskóli kl. 11. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir verður formlega sett í embætti sem prestur í Neskirkju af sr. Helgu Soffíu Konráðsdóttir prófasti í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra og sunnudagskólinn hefst. Í sunndagskólanum verður boðið upp á nýtt og spennandi efni sem þær Stefanía Steinsdóttir, Guðrún Þorgrímsdóttir og Katrín Helga Ágústsdóttir sjá um ásamt Ara Agnarsyni [...]
Messa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti Douglas A. Brotchie. Sr. Skúli S. Ólafsson prédikar og þjónar fyrir altari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Messa kl. 11. Fermingarbörn og foreldrar boðin velkomin í kirkjustarf vetrarins. Sumarnámskeiði fermingarbarna er nýlokið og í messunni verður fjallað um nokkur þemu úr því. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestar eru sr. Skúli S. Ólafsson og sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Samfélag og kaffihressing eftir messu að [...]
Messa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur Skúli S. Ólafsson. Samfélag og kaffisopi eftir messu.
Fermingarfræðslan er að hefjast! Sumarnámskeið hefst með sameiginlegum fundi fermingarbarna og foreldra þeirra eða forsjármanna í Neskirkju sunnudaginn 14. ágúst kl. 20. Það er ekki of seint að skrá sig á námskeiðið fyrir þá sem ekki eru þegar skráðir. Hægt er að skrá í síma 511 1560. Fundað verður í kirkjunni. Þar verður efni og fræðslufyrirkomulag kynnt. Kennsla hefst síðan daginn [...]
Sunnudaginn 7. ágúst messum við í garðinum ef veður leyfir. Ritningartextar dagsins, sem lesa má hér, fjalla um auðmýkt, fjölbreytni og þá náð sem ekki fer að okkar leikreglum. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða söng, prestur sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Eftir messuna er kaffihressing að vanda.
Stúlknakór Frederiksberg kirkju í Kaupmannahöfn heldur tónleika í Neskirkju þann 31. júlí kl. 17. Aðgangur er ókeypis. Kórinn syngur einnig við messu í kirkjunni kl. 11 sama dag. Stúlknakórinn, Frederiksberg Sogns Pigekor, var stofnaður árið 1984 og hefur Lis Vorbeck stýrt honum frá upphafi. Í honum eru stúlkur á aldrinum 12 – 20 ára og [...]
Guðsþjónusta kl. 11. Lítill drengur borinn til skírnar. Sungnir verða skírnarsálmar, bæði algengir og sjaldheyrðari. Svo íhugum við merkingu skírnarinnar, tákn hennar, vatnið og minnumst við skírnar okkar við skírnarfontinn. Félagar úr Kór Neskirkju leiða söng. Undirleik annast María Kristín Jónsdóttir. Prestur er sr. Steinunn A. Björnsdóttir. Eftir messu verður kaffihressing á torginu að vanda.