Messa kl. 11. Fermingarbörn og foreldrar boðin velkomin í kirkjustarf vetrarins. Sumarnámskeiði fermingarbarna er nýlokið og í messunni verður fjallað um nokkur þemu úr því. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestar eru sr. Skúli S. Ólafsson og sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Samfélag og kaffihressing eftir messu að vana.