Gott heilsufar

Krossgötur þriðjudaginn 10. október kl. 13.00. Gríma Huld Blængsdóttir, öldrunarlæknir, gefur heilræði um hollustu og gott heilsufari. Kaffiveitingar að vanda.

By |2023-10-09T10:25:03+00:009. október 2023 10:24|

Guðsþjónusta, barnastarf og myndlistarsýning

Guðsþjónusta, barnastarf og opnun myndlistarsýningar, sunnudaginn 8. október kl. 11. Prestar kirkjunnar, sr. Helga Kolbeinsdóttir og sr. Skúli S. Ólafsson þjóna. Fermingarbörn taka þátt í athöfninni. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Kristrún, Ásdís og Ari leiða barnastarfið. Sýning Ragnars Þórissonar verður opnuð við guðsþjónustuna og geta viðstaddir virt verkin fyrir sér [...]

By |2023-10-06T10:55:47+00:006. október 2023 10:55|

Trúarleg ljóð

Í næstu Krossgötum, þriðjudaginn 3. október kl. 13.00 mun Guðbjörn Sigurmundsson, kennari og bókmenntaunnandi frjalla um trúarlega ljóðlist. Kaffiveitinga.

By |2023-10-02T16:15:43+00:002. október 2023 16:15|

Messa 1. október

Messa og barnastarf kl 11. Sameiginlegt upphaf. Sr. Helga Kolbeinsdóttir predikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Nanna, Lilja og Ari leiða barnastarfið. Kaffisopi og samfélag á Torginu eftir messu.

By |2023-09-29T07:50:22+00:0028. september 2023 12:18|

Lífið er staður þar sem bannað er að lifa: Umfjöllun um geðröskun og von.

Skammdegisbirta sunnudaginn 1. október kl. 18.00. Steindór J. Erlingsson vísindasagnfræðingur segir á einlægan hátt í samnefndri bók sögu áratugalangrar baráttu sinnar við þunglyndi og kviða. Hann kemur víða við í frásögn sinni, vísar í bókmenntir, heimspeki, tónlist, að ógleymdum samskiptum sínum við heilbrigðisyfirvöld og baráttu við fordóma. Steindór tekst að sama skapi á við trúarhugmyndir og [...]

By |2023-09-25T10:29:07+00:0025. september 2023 10:29|

Krossgötur 26. september

Krossgötur þriðjudaginn 26. september kl. 13.00. Þríhyrningsdrama við Sundin blá haustið 1791. Már Jónsson, prófessor í sagnfræði við HÍ, flytur erindi þar sem hann sviptir hulunni af brotakenndum og illa varðveittum bréfaskiptum Sveins Pálssonar náttúrufræðings og hjónanna Stefáns Stephensens varalögmanns og Mörtu Maríu Hölter í Innra-Hólmi. Lyktir urðu vinslit sem vörðu í fjölda ára. Kaffiveitingar.

By |2023-09-26T12:40:00+00:0025. september 2023 09:45|

Messa sunnudaginn 24. september

Messa og barnastarf kl. 11:00. Sameiginleggt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Kristrún, Ásdís og Ari leiða barnastarfið. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Þetta er jafnframt síðasta helgin þar sem sýning Huldu Stefánsdóttur Jaðarstund er uppi. Kaffi á Torginu að samverum loknum.

By |2023-09-21T10:51:40+00:0021. september 2023 10:51|

Krossgötur 19. september

Krossgötur hefjast aftur eftir sumarfrí þriðjudaginn 19. september kl. 13.00. Þá mun Skúli S. Ólafsson, prestur í Neskirkju, kynnir dagskrána í vetur og deilir frásögum úr ýmsum áttum. Eins og venjulega bjóðum við upp á vikuleg erindi með kaffiveitingum á Torginu í Neskirkju. Dagskráin er fjölbreytt og tengist ýmsum sviðum lífs og tilveru.

By |2023-09-18T10:45:03+00:0018. september 2023 10:45|

Messa 17. september

Messa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Helga Kolbeinsdóttir. Söngur, sögur, gleði og gaman í sunnudagskólanum. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Kaffisopi og samfélag á Torgi eftir messu.

By |2023-09-15T10:06:48+00:0015. september 2023 10:06|

Messa 3. september

Messa í Neskirkju sunnudaginn 3. september kl. 11. Dagur kærleiksþjónustunnar, lagt verður út af óði Páls postula til kærleikans. Upphaf sunnudagskólans að hausti. Félagar úr Kór kirkjunnar syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Barnastarfið byrjar inn í kirkju en fer síðan inn í safnaðarheimili þar sem sögur verða sagða, sungið [...]

By |2023-08-29T12:28:51+00:0029. ágúst 2023 12:28|