Krossgötur – Tríó Vest

Krossgötur þriðjudaginn 28. nóvember kl. 13.00. Tríó Vest spilar verk eftir Brahms og íslensk tónskáld. Hópinn skipa Áslaug Gunnarsdóttir, píanó, Sigríður Bjarney Baldvinsdóttir, fiðla, og Victoria Taravskaia, selló. Kaffiveitingar.

By |2023-11-23T11:41:46+00:0023. nóvember 2023 11:38|

Pílagrímsferðir

Krossgötur þriðjudaginn 21. nóvember kl. 13.00 Sr. Elínborg Sturludóttir, prestur í Dómkirkjunni, segir frá pílagrímsferðum eftir Jakobsveginum á Íberíuskaga. Kaffiveitingar.

By |2023-11-20T10:40:25+00:0020. nóvember 2023 10:40|

Ástin, trú og tilgangur lífsins

Messa og barnastarf sunnudaginn 19. nóvember  kl. 11:00. Það ber til tíðinda að fyrrum Neskirkjuklerkur, sr. Sigurður Árni Þórðarson predikar og kynnir svo nýtúkomna postillu sína, Ástin, trú og tilgangur lífsins, á Torginu að messu lokinni. Félagar úr Kór Neskirkju syngja. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngu, sögur og gleði í barnastarfinu. [...]

By |2023-11-19T09:04:14+00:0019. nóvember 2023 09:04|

Skáldakvöld

Svo vel ber í veiði í útgáfumálum guðfræðinga að tveir úrvalsmenn úr þeim ranni hafa gefið út bók. Bjarni Karlsson kallar sína Bati frá Tilgangsleysi. Ljóðabók Guðmundar Brynjólfssonar heitir Hrópað úr tímaþvottavélinni. Skúli S. Ólafsson talar svo fyrir hönd lesenda og fjallar um bækurnar. Súpa verður á boðstólnum og vínlögg ef fólk vill, hvort tveggja gegn frjálsu [...]

By |2023-11-15T11:55:24+00:0015. nóvember 2023 11:55|

Fatasöfnun

Í eitt og hálft ár núna hefur verið móttaka í Neskirkju fyrir flóttafólk í Úkraínu. Nú vilja þau sem hafa skipulagt söfnunina fyrir þennan hóp, ásamt flóttafólkinu, bjóða Grindvíkingum að koma í Neskirkju á mánudögum og fimmtudögum í vetur. Móttakan er opin frá kl 18:00-19:30 og heitt á könnunni. Allir sem vilja leggja söfnuninni lið [...]

By |2023-11-15T11:53:44+00:0015. nóvember 2023 11:53|

Þverun

Krossgötur, þriðjudaginn 14. nóvember kl. 13.00. Rúnar Reynisson hefur ásamt Sigríði Elínar Haraldsdóttur einsett sér að ganga fagra landið Ísa. Ferðin hófst yst á Reykjanestánni og lýkur að Fonti á Langanesi. Kaffiveitingar.

By |2023-11-13T11:44:49+00:0013. nóvember 2023 11:44|

Fjölskylduguðsþjónusta 12. nóvember

Fjölskyldumessa kl 11. Sr. Helga Kolbeinsdóttir þjónar ásamt leiðtogum barnastarfsins, Kristrúnu, Nönnu og Ásdísi. Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Barnakór Neskirkju og Drengjakór Reykjavíkur syngja. Samfélag og kaffiveitingar á Torginu eftir stundinna.

By |2023-11-09T10:46:16+00:009. nóvember 2023 10:46|

Dómkirkjan í Reykjavík

Krossgötur þriðjudaginn 7. nóvember kl. 13. Við förum í niður í Dómkirkju þar sems sr. Svein Valgeirsson, Dómkirkjuprestur, leiðir okkur um húsakynnin og segir sögu þessarar merku byggingar. Kaffiveitngar. Lagt verður af stað frá Neskirkju kl. 13.00 með rútu. 

By |2023-11-06T13:27:25+00:006. nóvember 2023 13:27|

Allra heilagra messa

Messa kl. 11 sunnudaginn 5. nóvember. Barnastarfið er á sínum stað. Félagar úr Háskólakórnum syngja undir stjórn Helgu Marsellíusardóttur. Kristín Jóhannesdóttir er við hljóðfærið. Við minnumst látinna í hljóðri bæn. Kaffi á torginu að messu lokinni. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.

By |2023-11-02T13:54:55+00:002. nóvember 2023 13:54|

Siðaskiptin

Krossgötur þriðjudaginn 31. október kl. 13.00. Skúli S. Ólafsson, prestur í Neskirkju, fjallar um siðaskiptin á Íslandi og hvernig þau endurspegla straumhvörf valda og hugmynda í álfunni á 16. öld. Kaffiveitingar.

By |2023-10-30T11:24:22+00:0030. október 2023 11:24|