Jólastund barnanna og jólaball sunnudagaskólans fellur niður
Vegna sóttvarnartakmarkana neyðumst við til að fella niður jólastund barnanna á aðfangadag og jólaball sunnudagaskólans. Vonandi er það í síðasta sinn sem við þurfum að gera slíkt.
Vegna sóttvarnartakmarkana neyðumst við til að fella niður jólastund barnanna á aðfangadag og jólaball sunnudagaskólans. Vonandi er það í síðasta sinn sem við þurfum að gera slíkt.
Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Lára Bryndís Eggertsdóttir. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, söngur og gleði í sunnudagskólanum. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir, Hrafnhildur Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Guðsþjónustugestir ganga inn um kirkjudyr en sunnudagaskólinn verður alfarið í safnaðarheimili og ganga þátttakendur beint þar inn. Við leggjum áherslu á [...]
Sunnudaginn 12. desember verður fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Barnakór Neskirkju syngur undir stjórn Láru Bryndísar Eggertsdóttur, organista. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir leiðir stundina með starfsfólki úr barnastarfi. Þar verður jólaleikrit, jólasálmar og söngvar og jólasagan. Kirkjan verður hólfaskipt til að gæta sóttvarna. Verið velkomin.
Krossgötur þriðjudaginn 7. desember kl. 13.00 Guðni Elísson, rithöfundur, les upp úr bók sinni Ljósgildran og ræðir um hana. Eitt stærsta viðfangsefni bókarinnar eru guðdómurinn og trúarlífið. Jólakruðerí og heit súkkulaði. Umsjón sr. Skúli S. Ólafsson.
Sunnudaginn 5. desember kl. 13. mun Guðni Elísson prófessor í almennri bókmenntafræði ræða við Hallgrím Helgason, rithöfund og myndlistarmann um sýningu hans, Það þarf að kenna fólki að deyja. Á sýningu Hallgríms, gefur að líta málverk og teikningar sem kviknuðu út frá andláti föður listamannsins, sem lést á síðasta ári. Hallgrímur málar bæði krabbamein og dánarstundir [...]
Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Lára Bryndís Eggertsdóttir. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur, leikir og gleði í sunnudagaskólanum. Umsjón Arni Agnarsson og Kristrún Guðmundsdóttir. Guðsþjónustugestir ganga inn um kirkjudyr en sunnudagaskólinn verður alfarið í safnaðarheimili og ganga þátttakendur beint þar inn. Við leggjum áherslu á smitvarnir og minnum [...]
Krossgötur þriðjudaginn 30. nóvember kl. 13. Áslaug Gunnarsdóttir, píanókennari, kynnir og leikur verk á flygillinn í kirkjunni. Kaffiveitingar á Toginu.
Klukkan 11 er hátíðarguðsþjónusta og barnastarf við upphaf aðventu og nýs kirkjuárs. Drengjakór Reykjavíkur syngur undir stjórn Þorsteins Freys Sigurðssonar. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða almennan söng undir stjórn Láru Bryndísar Eggertsdóttur organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Barnastarfið er í safnaðarheimilinu og er gengið beint þangað inn. Umsjón hafa Kristrún Guðmundsdóttir og [...]
Krossgötur þriðjudaginn 30. nóvember kl. 13:00. Ása Laufey Sæmundsdóttir leiðir stundina. Gestur er Andrés Jónsson almannatengill sem talar um mannleg samskipti í mörgum blæbrigðum þeirra. Kaffiveitingar.
Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Gunnsteinn Ólafsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur og gleði í sunnudagaskólanum. Umsjón Kristrún, Hilda og Ari. Guðsþjónustugestir ganga inn um kirkjudyr en sunnudagaskólinn verður alfarið í safnaðarheimili og ganga þátttakendur beint þar inn. Við leggjum áherslu á smitvarnir og minnum á grímur [...]