Trúarleg ljóð
Krossgötur 21. mars kl. 13.00. Guðbjörn Sigurmundsson, kennari og þýðandi ræðir fornan trúarkveðskap, túlkar textana og ræðir samhengi þeirra við þá tíma sem þeir voru ortir. Kaffiveitingar.
Krossgötur 21. mars kl. 13.00. Guðbjörn Sigurmundsson, kennari og þýðandi ræðir fornan trúarkveðskap, túlkar textana og ræðir samhengi þeirra við þá tíma sem þeir voru ortir. Kaffiveitingar.
Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf í kirkjunni. Í messunni syngja félagar úr kór Neskirkju undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Textar dagsins fjalla um manna og möglandi fólk - og hið lifandi brauð. Í sunnudagaskóla leiðir Nanna Birgisdóttir Hafberg leiki, sögur og söng og Ari Agnarsson leikur undir. [...]
Krossgötur þriðjudaginn 14. mars kl. 13.00. Margrét Eggertsdóttir, rannskóknarprófessor á Árnastofnun leiðir okkur inn í föstuna með umfjöllun um evrópsk skáld sem ort hafa út frá píslarsögu Jesú Krist. Í því samhengi er Hallgrímur Pétursson verðugur fulltrúi og er áhugavert að skoða og meta sálma hans út frá hinu evrópska samhengi sem hann var hluti [...]
Messa og barnastarf kl. 11. sunnudaginn 12. mars. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur, leikir og gleði í sunnudagaskólanum. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Samfélag og kaffisopi eftir messu á Torginu.
Krossgötur þriðjudaginn 6. mars kl. 13.00. Píetasamtökin og vinna með syrgjendum. Bjarni Karlsson, prestur hefur unnið mikið og gott starf með syrgjendum og hefur einkum í störfum sínum byggt upp stuðningshópa meðal karlmanna sem vinna úr áföllum. Bjarni kynnir Píetasamtökinn og segir frá mikilvægu starfi þeirra. Kaffiveitingar.
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 sunnudaginn 5. mars. Tveir barnakórar syngja: Barnakór Neskirkju undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista og Drengjakór Reykjavíkur undir stjórn Þorsteins Freys Sigurðssonar. Almennur söngur, gleði og auðvitað biblíusaga. Prestur sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Starfsfólk barna og æskulýðsstarfs tekur þátt í guðsþjónustunni. Hressing og samfélag á Torginu að henni lokinni.
Krossgötur þriðjudaginn 28. febrúar kl. 13.00. Við bregðum okkur í stutt ferðalag yfir í Listasafn Íslands þar sem Ísabella Lövenholdt fræðslufulltrúi tekur á móti okkur og leiðir okkur í gegnum sýningarsalina og gömlu meistararnir verða skoaðir. Við hittumst í Neskirkju og fáum okkur kaffi og kruerí áður en við leggjum af stað.
Messa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkja leiða safnaðarsöng. María Kristín Jónsdóttir situr við hljóðfærið. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur og gleði í sunnudagskólanum. Umsjón Hrafnhildur Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Eftir messu verður sýning Arnars Ásgeirssonar Hreinsunaraðferðir / Cleaning methods opnuð á Torginu. Kaffisopi og samfélag.
Hilmar Björnsson, arkitekt ræðir um hverfið okkar og umgjörð Neskirkju, sjálfan Vesturbæinn. Hverfið er með þeim fyrstu sem var skipulagt frá grunni og á síðustu áratugum hafa nýir hlutar bæst við það en Hilmar hefur sjálfur skipulagt og teiknað margar byggingar á þessu svæði. Kaffiveitingar.
Guðsþjónusta og barnastarf á konudaginn kl. 11.00. Háskólakórinn syngur undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. Prestur er sr. Skúli Sigurður Ólafsson. Sunnudagaskólinn hefst inni í kirkju en fer svo í safnaðarheimilið þar sem boðið er upp á söng, sögur og leik undir stjórn Kristrúnar Guðmundsdóttur og félaga. Ari Agnarsson leikur undir. Hressing og samfélag á torginu eftir [...]