Fréttir

U-beygja alltaf leyfð!

„Þegar mönnum verður alvarlega á í lífinu hefst margslungið ferli.“ Úr pistli Arnar Bárðar sem birtist í Vesturbæjarblaðinu nýlega. Meira hér:

By |2006-11-27T19:35:55+00:0027. nóvember 2006 19:35|

Hlakkar þú til endaloka heimsins?

Sköpunin stynur. Jörðin stynur undan okkur mannfólkinu. Veröldin öll er veröld Guðs og þegar hún þjáist, þjáist Guð. Hann lætur sig varða umgengni okkar við lífríkið og við náunga okkar. Guðspjall dagsins tekur í það minnsta af allan vafa um það síðarnefnda. . .Úr prédikun Arnar Bárðar sunnudaginn 26. nóv. en útdrátt úr henni má [...]

By |2006-11-26T15:55:51+00:0026. nóvember 2006 15:55|

Flautað á Torginu

Seiðandi tónar, tangó og óramúsík hljómuðu á Torginu í Neskirkju í kvöld. Pamela de Sensi og Rúnar Þórisson léku og nutu aðstoðar leikaranna Sigurþórs Heimissonar og Halldóru Malín Pétursdóttur. […]

By |2006-11-23T22:06:06+00:0023. nóvember 2006 22:06|

Bænamessur alla miðvikudaga

Í dag verður fyrirbænamessa kl. 12.15 eins og alla aðra miðvikudaga ársins. Beðið er fyrir sjúkum og þeim sem óska fyrirbænar. Í lok samverunnar er altarisganga. […]

By |2006-11-22T10:52:34+00:0022. nóvember 2006 10:52|

Foreldramorgnar

Á næsta foreldramorgni, miðvikudaginn 22. nóvember, mun Jón Páll Hallgrímsson frá Regnbogabörnum koma í heimsókn og fjalla um einelti og afleiðingar þess. Foreldramorgnar eru alla miðvikudaga kl. 10.00.

By |2006-11-21T10:41:00+00:0021. nóvember 2006 10:41|

Myndasýning sr. Franks

Í Opnu húsi miðvikudaginn 22. nóvember mun sr. Frank M. Halldórsson, fyrrverandi sóknarprestur í Neskirkju sjá um fundinn. Kaffiveitingar kl. 15. Dagskráin hefst kl. 15.30. Allir velkomnir.Dagskrá haustið 2006 er hægt að nálgast hér.

By |2006-11-20T13:10:54+00:0020. nóvember 2006 13:10|

Fannfergi og kennimennska

Það hefur löngum blásið um Sigurbjörn Einarsson, biskup. Í gær var haldin hátíð til heiðurs þessum jöfri andlegra orðlista á tuttugustu öld. Það var eiginlega við hæfi að gert hefði byl og allt væri á kafi í snjó. […]

By |2006-11-20T10:33:33+00:0020. nóvember 2006 10:33|

Nei eða já?

Trúin er ekki utan við lífið, heldur í lífsmiðju. Mannsýn Biblíunnar er um allt líf manna, líka skugga, illsku og afbrot – kemur okkur við. Efnið í prédikun næstsíðasta sunnudagsins er um bið og brúðkaup. […]

By |2006-11-19T14:46:13+00:0019. nóvember 2006 14:46|

Tónað inn í aðventu

Hinn árlega tónlistarhátíð Neskirkju, Tónað inn í aðvetnu, hefst n.k. laugardag kl. 13.00 með sameiginlegum tónleikum ungs tónlistarfólks í Vesturbænum. […]

By |2006-11-15T14:40:10+00:0015. nóvember 2006 14:40|