Fréttir

Dauði eða kirkja lífs

Til hvers reglur? Trúarlíf, kirkjulíf, guðsdýrkun eru á villigötum, ef náunginn gleymist. Fagrir helgisiðir eru til lítils, ef menn deyja við heimreiðar kirkna. Prédikun sr. Sigurðar Árna 17. ágúst er á bak við þessa smellu.

By |2008-08-19T21:17:58+00:0019. ágúst 2008 21:17|

Hólar og Jeríkó

Þrettándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Þann dag er Hólahátíð og á þeim degi er íhuguð hættuför til Jeríkó. Hún er tákn fyrir ævigöngu okkar allra. Þetta verður íhugað í messunni 17. ágúst, kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Meðhjálpari Rúnar Reynisson og messuþjónn dr. Pétur Pétursson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar [...]

By |2008-08-16T21:13:23+00:0016. ágúst 2008 21:13|

Myndir frá Prag.

Komnar eru myndir frá fyrstu 5 dögunum í Prag. Við minnum á Ferðasögukvöldið þriðjudaginn 19. ágúst kl. 20.00, þar sem öllum er boðið að heyra um ferð unglingastarfsins á Evrópumót KFUM í Prag. Njótið myndanna.

By |2008-08-16T15:57:15+00:0016. ágúst 2008 15:57|

Leikjanámskeiðum sumarsins að ljúka

Leikjanámskeið sumarsins ljúka í dag eftir velheppnað sumar. Um 70 börn hafa sótt námskeiðin hjá okkur í sumar sem hafa verið fjölbreytt og skemmtileg. Í vikunni (á námskeiði IV) höfum við heimsótt Árbæjarsafn, silgt út í Viðey, skoðað Safn Einars Jónssonar og fræðst um boðskap kirkjunnar í leik og starfi. Myndasíðan okkar geymir fullt af [...]

By |2008-08-15T00:00:00+00:0015. ágúst 2008 00:00|

Fermingarfræðslan í Neskirkju er að hefjast!

Sumarnámskeið hefst með sameiginlegum fundi fermingarbarna og foreldra þeirra eða forsjármanna í Neskirkju sunnudaginn 17. ágúst kl. 20. Fundað verður í kirkjunni. Þar verður efni og fræðslufyrirkomulag kynnt. […]

By |2008-08-14T12:09:29+00:0014. ágúst 2008 12:09|

Ferð unglingastarfsins til Prag

Hópur ungmenna úr unglingastarfi Neskirkju sótti Evrópumót KFUM í Prag dagana 3.-9. ágúst. Hópurinn samanstóð af 9 ungmennum á aldrinum 15-18 ára auk umsjónarmanns unglingastarfsins Sigurvini Jónssyni. Ferðasögu hópsins má nú nálgast hér (Ferðasaga) á PDF formi og myndir úr ferðinni eru á myndasíðu BaUN.Vilji einhver nálgast frekari upplýsingar um mótið má skoða heimasíðu mótsins [...]

By |2008-08-11T08:54:04+00:0011. ágúst 2008 08:54|

Messa 10. ág kl. 11 – Nýr heimur – kúgarar og skrumarar hættir

Félagar úr Kór Neskirkju leiða söng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Meðhjálpari Rúnar Reynisson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og spjall á Torginu að guðsþjónustu lokinn. Texta dagsins er hægt að lesa hér. Ræðuna er hægt að lesa og hlusta á á bak við þessa smellu.

By |2008-08-08T22:03:52+00:008. ágúst 2008 22:03|

Messa 3. ág. kl. 11 – Speglar lífsins

Félagar úr Kór Neskirkju leiða söng. Organisti Reynir Jónasson. Meðhjálpari Úrsúla Árnadóttir. Messuþjónn dr. Pétur Pétursson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og spjall á Torginu að guðsþjónustu lokinn. Texta dagsins er hægt að lesa hér. Ræðuna er hægt að lesa og hlusta á hér.

By |2008-08-01T19:33:40+00:001. ágúst 2008 19:33|

Messa 27. júlí kl. 11 – Grátur, glötun og hamingjuleið

Félagar úr Kór Neskirkju leiða söng. Organisti Jón Bjarnason. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og spjall á Torginu að guðsþjónustu lokinn. Texta dagsins er hægt að lesa hér. Og svo er hægt að nálgast ræðuna hér til að lesa og/eða hlusta.

By |2008-07-26T10:58:19+00:0026. júlí 2008 10:58|

Sumar í Neskirkju – Ágúst 2008

Þann 5. ágúst nk. hefjast á ný sumarnámskeiðin okkar eftir sumarfrí. Námskeiðin eru viku í senn, frá mánudegi til föstudags, klukkan 13.00-17.00. Dagsetningarnar sem eru í boði í ágúst eru annars vegar 5-8 ágúst (fjögurra daga námskeið) og 11-15 ágúst .Myndir af námskeiðum júnímánaðar eru á myndasíðu barnstarfsins. […]

By |2008-07-25T00:00:00+00:0025. júlí 2008 00:00|