Leikjanámskeið sumarsins ljúka í dag eftir velheppnað sumar. Um 70 börn hafa sótt námskeiðin hjá okkur í sumar sem hafa verið fjölbreytt og skemmtileg. Í vikunni (á námskeiði IV) höfum við heimsótt Árbæjarsafn, silgt út í Viðey, skoðað Safn Einars Jónssonar og fræðst um boðskap kirkjunnar í leik og starfi. Myndasíðan okkar geymir fullt af myndum af námskeiðum sumarsins.