Fréttir

Messa 11. janúar – Börninn í öndvegi

Messa og barnastarf kl. 11. Tónlist Hjörleifur Valsson og Pamela De Sensi. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Ursulu Árnadóttur. Sr. Örn Bárður kveður söfnuðinn en hann verður í námsleyfi fram í maí. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr frímúrarastúkunni Glitni koma í messuheimsókn. Börnin [...]

By |2009-01-08T15:53:48+00:008. janúar 2009 15:53|

Minningargjöf um Ásdísi Einarsdóttur

Kór Neskirkju hélt sína árlegu aðventutónleika í Neskirkju þann 7. desember s.l. Til þess að heiðra minningu Ásdísar Einarsdóttur, félaga í Kór Neskirkju, var ákveðið að láta tiltekna upphæð af hverjum seldum miða renna til hjálparstarfa í Afríku. […]

By |2009-01-07T10:28:57+00:007. janúar 2009 10:28|

Ekkert gjald tekið meðan beðið er

Viltu ná sambandi? Í hverri viku ársins er fyrirbænamessa á miðvikudögum kl. 12.15. Messan tekur um 20 mínútur. Beiðni um fyrirbæn má koma til prestanna. Í kirkjuna er gott að koma, ekkert gjald er tekið meðan beðið er. Svo er sambandið gott, rofnar aldrei og flutningsgetan mikil! Allir velkomnir. […]

By |2009-01-06T20:49:50+00:006. janúar 2009 20:49|

Vilt þú að hlúa að BaUN-unum.

Félagsleg verðmæti í barna og unglingastarfi myndast í gegnum samveru og leik. Við í Barna og Unglinga Neskirkju óskum eftir að fá gefins spil og annað sem nota má í leik og starfi. Við gætum t.d. notað ýmis borðspil, spilastokka, eldri leikjatölvur, DVD myndir ofl. Gjafmildir mega hafa samband við umsjónarmann BaUN hjá sigurvin@neskirkja.is.

By |2009-01-05T15:36:33+00:005. janúar 2009 15:36|

Skuld, ráðleysi og firra?

Hvað gefa vitringar? Varla bull, ergelsi og pirru – eða skuld, ráðleysi og firru? Nei, gjafir þeirra eru til lífsbóta, fæðingargjafir og trúargáfur. Við getum notið þeirra við bætur eigin lífs og samfélags í krísu. Íhugun sr. Sigurðar Árna 4. janúar 2009 er að baki þessari smellu.

By |2009-01-04T21:54:00+00:004. janúar 2009 21:54|

4. janúar – messa og barnastarf kl. 11.00

Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Magnús Ragnarsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Börnin byrja í messunni en fara síðan í safnaðarheimilið. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði. Umsjón Sigurvin, María, Andrea, Ari og Alexandra. Samfélag á Torginu eftir messu.

By |2009-01-03T23:40:54+00:003. janúar 2009 23:40|

Að gæta fjár og fjöreggs

Hjörðin var dýrmæt. Íslensk tunga nær því vel að hjörð stendur fyrir verðmæti því fé vísar í senn til lifandi fjár og dauðra peninga. Fjárhirðar Íslands gættu sjóða almennings, þeir heyrðu þrusk í skógi og jafnvel ýlfur en . . .Úr nýársdagsræðu sr. Arnar Bárðar sem hægt er að lesa og hlusta á með því [...]

By |2009-01-02T16:43:28+00:002. janúar 2009 16:43|

Fella eða gefa séns?

Egóismi í bland við fjársókn er skelfileg blanda. Samfélag hefur liðið fyrir og verið í álögum, undir vef blekkingar. Lygi leiðir alltaf til hruns, blekking elur aðeins dauða og lygavefur veldur eyðingu. Á að fella eða gefa séns? Íhugun sr. Sigurðar Árna á gamlárskvöldi 2008 er að baki þessari smellu.

By |2009-01-01T11:44:31+00:001. janúar 2009 11:44|

Helgihald í Neskirkju við áramót

Gamlársdagur 31. desember - Aftansöngur kl. 18.00Einsöngur Jóhann Friðgeir Valdimarsson. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari.Nýársdagur 1. janúar – Hátíðarmessa kl. 14.00.Einsöngur Gissur Páll Gissurarson. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari.

By |2008-12-30T21:09:52+00:0030. desember 2008 21:09|

Sr. Kristján Valur messar

Á sunnudegi milli jóla og nýárs, 28. desember, mun sr. Kristján Valur Ingólfsson prédika og þjóna fyrir altari í Neskirkju. Sr. Kristján Valur er sóknarprestur á Þingvöllum, helsti sérfræðingur þjóðkirkjunnar og kennari guðfræðinema í kennimannlegum fræðum. Textar dagsins eru aðgengilegir undir þessari smellu. Guðspjallið fjallar um Símeon og lífsfyllingu hans og lofsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson [...]

By |2008-12-28T01:07:48+00:0028. desember 2008 01:07|