Fréttir

Opið hús 4. febrúar

Fyrsta Opna húsið eftir áramót verður miðvikudaginn 4. febrúar. Í upphafi verður boðið upp á kaffi og með því kl. 15 á Torginu. Gestur dagsins er sr. Bernharður Guðmundsson fyrrverandi rektor í Skálholti. Og mun hann halda erindi sem hann kallar Gjöf þess að eldast. Hann hefur verið í þjónustu kirkjunnar hérlendis og erlendis frá [...]

By |2009-02-03T09:50:02+00:003. febrúar 2009 09:50|

…við hégóma

Boðorðamessa og barnstarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur, Sigurður Árni prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Toshiki. Annað boðorðið til skoðunar: Þú skalt ekki leggja leggja nafn Drottins, Guðs þíns, við hégóma. Messuþjónar. Í barnastarfinu söngur, sögur, brúður og leikir. Umsjón Sigurvin, María, Andrea og Ari. Súpa, brauð, kaffi og [...]

By |2009-01-29T22:13:41+00:0029. janúar 2009 22:13|

Hádegisbænir alla miðvikudaga

Messað er í Neskirkju hvern miðvikudag ársins. Messan hefst kl. 12,15 með víxlestri úr ritningunni og íhugun. Að fyrirbænum loknum er boðið til veislu himinsins! Fyrirbænarefni má senda til prestanna sem og starfsmanna kirkjunnar eða koma þeim á framfæri við upphaf messu. Allir velkomnir.

By |2009-01-27T00:00:00+00:0027. janúar 2009 00:00|

Mannasiðir – fyrsta orðið

Neskirkjuprestarnir munu fjalla um boðorðin í sunnudagsmessum næstu vikur. Sr. Sigurður Árni flutti fyrstu íhugunina 25. janúar. Í prédikun hans segir meðal annars: "Boðorðin eru ljómandi grundvöllur fyrir mannasiði og boðskort til réttláts þjóðfélags." Ræðan er að baki þessari smellu.

By |2009-01-25T19:22:35+00:0025. janúar 2009 19:22|

Mannasiðir á góðum grunni

Boðorðamessa 25. janúar, fyrsta boðorðið til skoðunar. Steingrímur Þórhallsson stjórnar söng safnaðar. Félagar í kór Neskirkju syngja. Sr. Sigurður Árni prédikar. Messuþjónar, Droplaug, Ingibjörg, Magnús, Sesselja og Rúnar. Umsjón með barnastarfi hafa Sigurvin, María, Andrea, Emilía og Ari. Messan og barnastarf hefjast kl. 11. Súpa, kaffi og spjall eftir messu.

By |2009-01-23T18:36:21+00:0023. janúar 2009 18:36|

Orðin tíu í Neskirkju

Hvaða gildi hafa boðorðin í nútímanum? Frá og með 25. janúar 2009 verða þessar fornu reglur ræddar. Í stað þess að leggja út af texta kirkjuársins verður prédikað út einu boðorði í hvert sinn. Frætt verður um samhengi þeirra, merkingu og hvernig má nýta þau í líf einstaklings og samfélags. Þau eru ekki leiðinleg bönn, [...]

By |2009-01-20T20:27:05+00:0020. janúar 2009 20:27|

NeDó og Fönix í Skálholt

Unglingastarf Neskirku tók sig upp síðasta laugardag (17. jan) og heimsótti nýstofnað æskulýðsfélag Skálholtskirkju en yfir 20 ungmenni hafa sýnt því áhuga að taka þátt í æskulýðsstarfi þar. Við fylltum því rútu með Fönix krökkum og NeDó-ingum og stýrðum leikjadagskrá í Skálholtsskóla en fengum að launum dýrindis kvöldmat. Við þökkum fyrir höfðinglegar móttökur og hlökkum [...]

By |2009-01-20T13:39:50+00:0020. janúar 2009 13:39|

Nýtt kynningarmyndband fyrir unglingastarf Neskirkju

Diljá Rut Guðmundudóttir, ein af snillingunum okkar í eldra unglingastarfinu, hefur sett saman kynningarmyndband fyrir æskulýðsfélögin okkar tvö, Fönix (8.-10. bekkur) og NeDó (framhaldsskóli). Myndbandið var prufukeyrt í Skálholti síðustu helgi og uppskar dynjandi lófatak. Takk Diljá fyrir þitt frábæra myndband.

By |2009-01-20T12:59:31+00:0020. janúar 2009 12:59|

Vel fyrir kallaður?

Guð kallar hið innra, í líkama okkar, heima og í vinnunni. Ef við bregðumst við eins og Samúel og Sakkeus skerpist heyrn á raddir lífs. Við erum vel fyrir kölluð þegar við gegnum kalli Guðs. Prédikun sr. Sigurðar Árna 18. janúar 2009 er að baki smellunni.

By |2009-01-19T13:23:03+00:0019. janúar 2009 13:23|

Ertu í essinu þínu?

Það er spurning messunnar 18. janúar. Prestar: Toshiki og Sigurður Árni sem prédikar. Magnús Ragnarsson stjórnar söng safnaðar. Félagar í kór Neskirkju syngja. Messuþjónar: Helga, Sigurþór og Valdimar. Umsjón með barnastarfi hafa Sigurvin, María, Andrea, Emilía og Ari. […]

By |2009-01-15T11:32:49+00:0015. janúar 2009 11:32|