Fréttir

Skálholt heillar

Opið hús verður á hjólum næsta miðvikudaginn, 13. maí! Farin verður vorferð í Skálholt. Brottför kl. 13 frá Neskirkju. Dr. Kristinn Ólason, rektor Skálholtsskóla mun ræða um sögu staðarins. Kaffihlaðborð í Skálholtsskóla. Ferðin er í boði Neskirkju en veitingar í Skálholti greiða þátttakendur sjálfir. Skráning í Neskirkju, 511-1560.

By |2009-05-11T14:57:38+00:0011. maí 2009 14:57|

Jákvæð sálfræði – fyrirlestur 17. maí

Anna Jóna Guðmundsdóttir heldur fyrirlestur um jákvæða sálfræði eftir messu í Neskirkju næsta sunnudag 17. maí. Anna Jóna er sálfræðikennari við Fjölbrautarskólann í Breiðholti. Á krepputíma er ráð að huga að hinu jákvæða og Anna Jóna getur varpað sínu fræðaljósi á málin. Fyrirlesturinn verður á Torginu og hefst kl. 12,30. […]

By |2009-05-11T14:48:39+00:0011. maí 2009 14:48|

Seðlabanki og lífið

Umhyggja, samfélagsábyrgð, samtryggingarafstaða hafa verið töluð niður. Á okkur hvílir nú sú afstaða að tala upp, hugsa upp, byggja upp siðvit og biðja upp traust, von og gleði. Skilaboð “seðlabankans,” hagstefna himinsins og stefna kirkjunnar fara saman. Prédikun Sigurðar Árna frá 10. maí er að baki smellunni.

By |2009-05-10T21:11:40+00:0010. maí 2009 21:11|

Hanna Johannessen – minning og kveðja

Við upphaf útfarar Hönnu flutti Örn Bárður minningarbrot. Orð hans er bæði hægt að hlýða á og lesa á bak við þessa smellu. Sigurðar Árni flutti hina eiginlegu líkræðu og má nálgast hana í lok annarrar fréttar um Hönnu neðar á þessari síðu.

By |2009-05-09T10:16:48+00:009. maí 2009 10:16|

Til starfa

Hin lútherska þjóðkirkja leggur áherslu á hinn almenna prestsdóm. Í því felst ákveðin stefna lýðræðis í starfi kirkjunnar. Sunnudaginn 10. maí verður aðalfundur Nessóknar. Fundur hefst fljótlega eftir að messu lýkur. Verið velkomin til aðalfundar og starfa í söfnuðinum. Þín er þörf í starfi kirkjunnar.

By |2009-05-09T09:46:01+00:009. maí 2009 09:46|

Messað fyrir elskuna 10. maí

Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Börnin byrja í kirkjunni en fara síðan í safnaðarheimilið. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði. Umsjón: Siguvin, María, Andrea og Ari. Súpa, brauð, kaffi og samfélag á Torginu eftir messu.

By |2009-05-09T09:41:07+00:009. maí 2009 09:41|

Hanna Johannessen

Hanna Ingólfsdóttir Johannessen var varaformaður sóknarnefndar Neskirkju og atorkukona í starfi safnaðarins. Líf hennar var sem samfelld prédikun, útlegging á elskuboðskap Jesú. Útför hennar varð gerð frá Neskirkju 8. maí 2009. Minnningarorð Sigurðar Árna birtast að baki þessari smellu.

By |2017-04-26T12:23:50+00:008. maí 2009 21:12|

Orðspor – opið hús

Gunnar Hersveinn er einn kunnasti heimspekingur Íslendinga. Auk þess að gefa út ljóð hefur hann skrifað fjölda greina og bóka um heimspekileg málefni. Síðustu bækur hans fjalla um gildi í samfélaginu og sú síðasta um orðspor. Gunnar Hersveinn verður í Opnu húsi, miðvikudaginn 5. maí. Kaffiveitingar verða á Torginu frá kl. 15.

By |2009-05-05T15:48:25+00:005. maí 2009 15:48|

Himnaríkið

Messa og barnastarf 3. maí hefjast kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju syngja. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson talar um hugmyndir okkar um himin og eilífð í prédikuninni. Messu- og altarisþjónusta: Sr. Halldór Reynisson og messuþjónar. Börnin byrja í kirkjunni en fara síðan í safnaðarheimilið. Umsjón: Sigurvin, María, Andrea og Ari. Súpa, brauð, [...]

By |2009-04-30T19:39:46+00:0030. apríl 2009 19:39|

Sunnudagurinn 26. apríl

Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Litli kórinn, kór eldri borgar í Neskirkju syngur undir stjórn Inga J. Backman. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Börnin byrja í kirkjunni en fara síðan í safnaðarheimilið. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði. Umsjón: Siguvin, María, [...]

By |2009-04-24T16:42:13+00:0024. apríl 2009 16:42|