Fréttir

Leikjanámskeið Neskirkju hefjast í næstu viku.

Góður hópur krakka hefur nú þegar skráð sig á leikjanámskeið sem hefjast í næstu viku. Námskeiðin verða fjögur í ár, tvö í júní og tvö í ágúst. Enn eru nokkur laus pláss á námskeiðunum en skráningar má senda á neskirkja@neskirkja.is eða hringja í síma 511-1560. Meiri upplýsingar má finna á vef ÍTR.

By |2017-04-26T12:23:50+00:002. júní 2009 13:33|

Messa annan í hvítasunnu 1. júní

Hátíðarmessa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Fermdur verður Hilmar Örn Eggertsson (Luxemborg) Bogahlíð 4.

By |2009-06-01T09:46:38+00:001. júní 2009 09:46|

Vel heppnuð vorferð á Bjarteyjarsand

1. Verið góð við dýrin. 2. Ekki gefa lömbunum hey. 3. Verið góð við hvert annað. Þetta eru reglurnar á Bjarteyjarsandi og Sunnudagaskólahópurinn frá Neskirkju fylgdi reglum sveitabæjarins með sól í hjarta. Við fengum að gefa nýfæddu lambi pela, fóðra mannígu kanínuna Kát, og grilla á bæjarhlaðinu í félagsskap fjörugra hunda. Á bakaleiðinni fóru fram [...]

By |2017-04-26T12:23:50+00:0024. maí 2009 21:02|

Vor(báta)ferð ÆSKR

Í vorblíðunni síðasta miðvikudag (20. maí) hittust æskulýðsfélög á höfuðborgarsvæðinu í Nauthólsvík. Ýmislegt var í boði en krakkarnir fóru í báta saman, spiluðu strandblak, kepptu um besta sandkastalann, þáðu pylsur og nutu góða veðursins. Krakkarnir úr fönix og NeDó létu sig ekki vanta og eru myndir af fjörinu á myndasíðu BaUN.

By |2009-05-23T00:00:00+00:0023. maí 2009 00:00|

Vorferð Sunnudagaskólans

Næstkomandi sunnudag verður farin vorferð Sunnudagaskólans en ferðin markar skólaslit á þessum vetri. Við byrjum í messu kl 11.00, líkt og venja er, en skipum okkur síðan í rútur fyrir utan kirkjuna. Að þessu sinni er stefnt á bóndabæinn Bjarteyjarsand í Hvalfirði en þar ætlum við að klappa dýrum, leika okkur í fjörunni og grilla [...]

By |2009-05-21T00:00:00+00:0021. maí 2009 00:00|

Guðsgaflar og puttabænir

Fingurnir eru mismunandi og hægt að nota þá til aðstoðar í samtalinu við Guð. Eðlisþættir puttanna geta minnt á mikilvæga þætti, sem við megum gjarnan orða við himinvin okkar. Þeir geta orðið okkur hinir þörfustu guðsgaflar. Prédikun Sigurðar Árna 17. maí er að baki smellunni!

By |2017-04-26T12:23:50+00:0020. maí 2009 22:53|

Viðurkenningar fyrir skrúðatillögur

Nemendur í Listaháskólanum gerðu tillögur um skrúða fyrir Neskirkju. Í dag hlutu viðurkenningar þau Anton Kaldal Agústsson, Birna Einarsdóttir og Borghildur Ína Sölvadóttir. Verkefnið var samvinnuverkefni kirkjunnar og skólans. […]

By |2009-05-19T10:33:07+00:0019. maí 2009 10:33|

Bænadagur – helgihald og fyrirlestur

17. maí er ekki bara þjóðhátíðardagur Norðmanna heldur bænadagur íslensku þjóðkirkjunnar. Í messunni í Neskirkju syngur Kór Neskirkju, Steingrímur stjórnar söng, Sigurður Árni þjónar fyrir altari og prédikar, Þórunn og Davíð Þór og Valdimar eru messuþjónar. Björg og Andrea stjórna barnastarfinu. Eftir messu verður kaffi. Anna Jóna Guðmundsdóttir flytur í hádeginu fyrirlestur um jákvæða sálfræði.

By |2009-05-17T10:27:03+00:0017. maí 2009 10:27|

Starfsskýrsla 2008 – 2009

Síðast liðinn sunnudag 10. maí var haldinn aðalsafnaðarfundur Nessóknar. Á fundinum var lögð fram starfsskýrsla sóknarinnar. […]

By |2009-05-14T13:13:19+00:0014. maí 2009 13:13|

Paradís

“Þú ert ekki búinn að setja á vefinn prédikunina um himnaríkið - manstu ræðuna um Línu langsokk!” Í önnum hafði gleymst að setja prédikun frá 3. maí á netið. Að baki smellunni er paradísarprédikun.

By |2009-05-11T23:08:51+00:0011. maí 2009 23:08|