Fréttir

Fríkirkjur á Íslandi

Í Opna húsinu miðvikudaginn 18. nóvember kl. 15. Fríkirkjur á Íslandi. Dr. Pétur Pétursson, prófessonr við HÍ og sóknarnefndarmaður í Nessöfnuði, íhugar starf fríkirkusafnaða, tilgang þeirra, áherslur og þróun. Kaffiveitingar í upphafi á Torginu. Allir velkomnir.

By |2009-11-17T13:23:18+00:0017. nóvember 2009 13:23|

Guðfræði 101

Hvað er guðfræði? Hvers vegna skiptir máli að þekkja Biblíuna? Hvers konar bók er Biblían? Með námskeiðinu er stefnt að því að gefa innsýn í viðfangsefni guðfræðinnar, kynna bækur Biblíunnar og ítreka mikilvægi biblíuþekkingar til skilnings á umræðum samtímans. Sigurvin Jónsson, guðfræðingur, kennir ásamt prestum kirkjunnar. Við byrjum kl. 18 og hættum kl. 20.30. Kvöldverður [...]

By |2017-04-26T12:23:49+00:0015. nóvember 2009 17:00|

Messa 15. nóvember

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og leikir í barnastarfinu, umsjón María og Ari. Súpa, brauð, kaffi og samfélag á Torginu eftir messu. Ræðuna er hægt að lesa og hlusta á hér.

By |2009-11-14T09:53:27+00:0014. nóvember 2009 09:53|

Opið hús miðvikudagin 11. nóvember

Ólöf Sigurðardóttir, forstöðumaður Hafnarborgar, menningar og listamiðstöðvar Hafnarfjarðar, kemur í heimsókn og talar um myndlist ásamt Jóni Axeli Björnssyni, myndlistarmanni, sem á myndirnar á Torginu. Kaffiveitingar í upphafi. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15.

By |2017-04-26T12:23:49+00:0010. nóvember 2009 12:33|

Fullorðinstrú – fræðsla og umræður

Næsti fyrirlestur verður þriðjudaginn 10. nóv. 2009 kl. 18 og er hann sá þriðji og síðasti í þessari lotu námskeiðs undir yfirskriftinni Fermingarfræðsla fyrir fullorðna. Séra Örn Bárður Jónsson, mun m.a. ræða um trúarlíf og köllun kristinna, líf í samfélagi, hvernig trúin snertir daglegt líf og ákvarðanir. […]

By |2017-04-26T12:23:49+00:009. nóvember 2009 07:28|

Messa 8. nóvember

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Þórhildur Ólafs prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Sigurvin, María, Ari og fleiri leiða barnastarfið, söngur, sögur, brúður og gleði. Súpa, brauð, kaffi og samfélag á Torginu eftir messu.

By |2009-11-05T13:03:35+00:005. nóvember 2009 13:03|

Foreldramorgunn – Áttu ungbarn?

Vertu velkomin/n á Foreldramorgunn í Neskirkju alla fimmtudagsmorgna kl. 10 - 12. Sjá dagskrá hér! Börnin geta sofið í vagni við salardyrnar eða látið fara vel um sig á dýnu innan dyra. Kaffi og meðlæti í samfélagi við aðrar mömmur og pabba. Sjáumst!

By |2017-04-26T12:23:49+00:004. nóvember 2009 09:44|

Opið hús 4. nóvember

Í Opna húsinu miðvikudaginn 4. nóvember mun Sigursteinn Másson, formaður Geðhjálpar, flytja erindið „Andleg sjálfsvörn“. Þar fjallar hann um leiðir til að vernda geðheilbrigði og varnir gegn neikvæðum hugsunum og áreiti í samskiptum fólks. Kaffiveitingar á Torginu. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15.

By |2009-11-03T09:54:54+00:003. nóvember 2009 09:54|

Allra heilagra messa 1. nóvember

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Látinna minnst. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Ræðuna er hægt að lesa og hlusta á hér. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og leikir í barnastarfinu, umsjón Sigurvin, María og Ari. Súpa, brauð, kaffi og samfélag á Torginu eftir messu. Því [...]

By |2017-04-26T12:23:49+00:0029. október 2009 11:00|

Opið hús heimsækir Digraneskirkju í Kópavogi

Í Opna húsinu miðvikudaginn 28. október verður farið í heimsókn í Digraneskirkju í Kópavogi. Þar munu prestarnir Magnús Björn Björnsson og Yrsa Þórðardóttir taka á móti hópnum og segja frá kirkjunni, safnaðarstarfinu og hamingjuleiðinum í Kópavogi. Lagt verður af stað frá Neskirkju rúmlega 15.

By |2009-10-27T21:00:00+00:0027. október 2009 21:00|