Opið hús miðvikudaginn 17. febrúar
Opið hús kl. 15. Örn Sigurðsson arkitekt talar um skipulagsmál og lýðræði, sem hann hefur látið sig mjög varða. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi. Allir velkomnir
Opið hús kl. 15. Örn Sigurðsson arkitekt talar um skipulagsmál og lýðræði, sem hann hefur látið sig mjög varða. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi. Allir velkomnir
Föstudaginn 19. febrúar verður opnuð sýning á nokkrum verkum Eggerts Péturssonar (1956) myndlistarmanns í safnaðarheimili Neskirkju. Á sýningunni eru olíumálverk og nokkrar vatnslitamyndir. […]
Um 40 prúðbúin ungmenni skemmtu sér saman á árshátíð NeDó og Fönix s.l. þriðjudag. Mikið var um dýrðir en Ólafía, matráðskona Neskirkju hafði töfrað fram Tortilla kjúkling ofan í ungmennin og Anna Arnardóttir æskulýðsfrömuður var veislustjóri. Árshátíðin er uppskeruhátíð þeirra ávexta sem að krakkarnir hafa fengið að njóta með því að gefa sig í kirkjustarfið, [...]
Á námskeiðinu verður fjallað um Jakobsbréf Nýja testamentisins. Á námskeiðinu verða tekin fyrir þau stef sem að bréfið varðveitir um misskiptingu auðs, mikilvægi þess að sýna trú í verki og hvernig öðlast má heilindi í eigin trúarlífi fyrir tilstuðlan speki Guðs. […]
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Þórhildur Ólafs prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur og leikir í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, María og Ari. Súpa, brauð, kaffi og samfélag á Torginu eftir messu.
Þorvaldur Halldórsson tónlistarmaður kynnir og syngur trúarlega söngva og veraldlega. Þorvaldur söng á sínum tíma lagið „ Á sjó“ og festi sig með því rækilega í hugum margra samlanda sinna, sem hafa notið þess ávallt síðan að heyra hann hefja upp raust sína. Þorvaldur starfar á vegum Reykjavíkurprófastsdæmanna og hefur á undanförnum árum tekið þátt [...]
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og leikir í barnastafinu. Umsjón Sigurvin, María og Ari. Súpa, brauð, kaffi og samfélaga á Torginu eftir messu. Tekin verða samskot fyrir Biblíufélagið í messunni. [...]
Opið hús kl. 15. Dr. Gunnlaugur A. Jónsson prófessor í Gamla testamentisfræðum við Háskóla Íslands ræðir um Jesaja, 40-50, sem kallaður hefur verið „huggunarspámaður Gamla testamentisins“. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi. Allir velkomnir.
Hamingja skiptir máli. Rannsóknir sýna að hamingjusamt fólk nýtur meiri velgengni og lifir lengur. Jákvæð sálfræði er ný grein innan sálfræðinnar sem fjallar um hvað verður til þess að fólk og stærri samfélög blómstra, öðlast hamingju og lífsfyllingu. Þriðjudagana 26. janúar, 2., 9., og 16. febrúar verður námskeið um jákvæða sálfræði í Neskirkju kl. 18 [...]
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Þórhildur Ólafs prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og leikir í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, María og Ari. Súpa, brauð, kaffi og samfélag á Torginu eftir messu.