Fréttir

Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar í Neskirkju

Sunnudaginn næsta er æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar og verður margt um dýrðir í Neskirkju þann dag. Um morguninn kl. 11 verður fjölskylduguðsþjónusta með Barböru trúð og heilíumblöðrum í tilefni dagsins. Um kvöldið kl. 20 verður haldin margmiðlunarmessa á vegum ÆSKR sem ber yfirskriftina Bænarý og er sérstaklega ætluð unglingum og ungu fólki. Þó að dagurinn fagni æsku [...]

By |2010-03-06T14:26:06+00:006. mars 2010 14:26|

Saltfiskur

Þriðji saltfisksdagurinn verður n.k. föstudag, 5. mars. Boðið verður upp á saltfiskrétt Miðjarðarhafsins. Þá mun Kristrún Heiða Hauksdóttir kynningarstjóri hjá JPV útgáfunni segja frá lánum í lífi sínu. Máltíðin hefst kl. 12. en örhugvekja Kristrúnar um 12.30. Sjá meira um saltfiskdaga hér!

By |2010-03-04T11:00:14+00:004. mars 2010 11:00|

0110101001100101011100110111010101110011

ÆSKR stendur fyrir margmiðlunarguðsþjónustu fyrir æskulýðsfélögin í Neskirkju á æskulýðsdaginn kl. 20.00. Stundin ber yfirskriftina Bænarý en margmiðlunarguðsþjónusta er nýtt fyrirbrigði á Íslandi. Þar verður öll möguleg tækni s.s. SMS, skjátækni, hljóð, tölvubænir, Skype o.fl nýtt við helgihaldið. Það er ljóst að í guðsþjónustunni munu gestir upplifa eitthvað alveg nýtt og einstakt sem sýnir að [...]

By |2017-04-26T12:23:48+00:004. mars 2010 10:15|

Viltu blöðru?

Sunnudaginn 7. mars kl. 11 verður haldin fjölskylduguðsþjónusta í Neskirkju í tilefni æskulýðsdags Þjóðkirkjunnar. Öll börn og ungmenni sem koma til kirkju fá gasblöðru í upphafi stundarinnar ;) Barnakór Neskirkju undir stjórn Björns Thorarensen og Stúlknakór Neskirkju undir stjórn Steingríms Þórhallssonar syngja lög og sálma fyrir söfnuðinn og kór Neskirkju leiðir safnarsöng ásamt leiðtogum sunnudagaskólans. [...]

By |2017-04-26T12:23:48+00:004. mars 2010 10:08|

Opið hús miðvikudaginn 3. mars

Opið hús kl. 15. Ólafur Egilsson fv. sendiherra spjallar um íslensku utnaríkisþjónustuna en innan hennar starfaði hann í fjóra áratugi og var m.a. sendiherra í Londan, Moskvu, Kaupmannahöfn og Beijing. Kaffiveitingar í upphafi á Torginu.

By |2010-03-02T12:21:18+00:002. mars 2010 12:21|

Námskeið um Jakobsbréf hefst á morgun

Enn er laust á námskeiðið Jakobsbréf, vegvísir að heilindum en fyrsta kvöldið er á morgun. Á námskeiðinu verður fjallað um Jakobsbréf Nýja testamentisins. Námskeiðið er þrjú kvöld, þriðjudagskvöldin 23. febrúar, 2. og 9. mars frá 18.00-20.30. Námskeiðsgjald er krónur 3.000 og innifalið er létt máltíð. Kennsla er í höndum Sigurvins Jónssonar og Rúnars Reynissonar. Skráning [...]

By |2010-02-22T12:31:44+00:0022. febrúar 2010 12:31|

Vel heppnað æskulýðsmót um helgina.

Veglegur hópur unglinga og leiðtoga frá Neskirkju sóttu nú um helgina Vormót ÆSKR í Vatnaskógi og má fullyrða að vesturbæjingarnir skildu ekki sitt eftir á mótinu. NeDó leiðtogarnir okkar stýrðu kvöldguðþjónustu á föstudaginn, skipulögðu skógarleiki á laugardagsmorgun, héldu uppi kvöldvöku á laugardaginn auk þess að vinna hörðum höndum að framkvæmd mótsins. Á laugardagskvöldinu sýndu Neskirkjukrakkarnir [...]

By |2017-04-26T12:23:48+00:0022. febrúar 2010 10:07|

Messa sunnudaginn 21. febrúar

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum, stjórnandi Gunnsteinn Ólafsson. Organist Magnús Ragnarsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og leikir í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, María og Ari. Súpa, brauð og kaffi á Torginu eftir messu.

By |2010-02-20T10:42:30+00:0020. febrúar 2010 10:42|

Fjölmenni á 1. saltfiskdegi og opnun sýningar

Á fimmta tug fólks kom til að snæða ljúfengan saltfisk sem eldaður var eftir grískri uppskrift. Um leið var opnuð sýning á verkum eftir listamanninn, Eggert Pétursson, sem er sóknarbarn í Nessókn og kunnur af sínum fíngerðu blómamyndum. Sr. Örn Bárður Jónsson sagði frá bókinni Outliers og ræddi um lífslánin sín. Næsta föstudag, 26. febrúar [...]

By |2017-04-26T12:23:48+00:0019. febrúar 2010 13:46|

Saltfiskdagar

Hinir árlegu saltfiskdagar hefjast á ný í Neskirkju föstudaginn 19. febrúar kl. 12. Eldaður verður suðrænn saltfiskur (bacalao). Ólafía Björnsdóttir matráður mun töfra fram magnaða rétti 6 föstudaga í röð. Þér er hér með boðið að koma og njóta góðra rétta á sanngjörnu verði en hluti af verði hverrar máltíðar rennur til líknarmála. [...]

By |2017-04-26T12:23:48+00:0018. febrúar 2010 20:59|