Fréttir

Ábyrgð og aðstoð

Opið hús miðvikudaginn 3. nóvember kl. 15. Ábyrgð og aðstoð Íslendinga. Hjálparstarf kirkjunnar er fjölbreytilegt og fólk nýtur þjónustu þess innanlands sem utan. Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri, segir frá og sýnir myndir. Veitingar í upphafi á Torginu.

By |2010-11-02T10:42:54+00:002. nóvember 2010 10:42|

Messa 31. október

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Lísbet, Andrea og Ari. Samfélag, veitingar kaffi og kynnig á starfi Gideonsfélagsins eftir messu á Torginu. Ræðu Arnar Bárðar [...]

By |2010-10-29T16:00:47+00:0029. október 2010 16:00|

Týnda syninum fagnað

Biblíumáltíðir eru í Neskirkju á föstudögum kl. 12. Í dag, 29. október, verður haldin veisla til fagnaðar týnda syninum, sem sagt er frá í  15. kafla Lúkasarguðspjalls. Hver var og er týndur? Hvað merkir sagan og hvernig var veislan, sem pabbinn hélt manninum sem sóaði auði fjölskyldunnar? Týndir og fundnir hjartanlega velkomnir og allir hinir [...]

By |2010-10-29T06:59:00+00:0029. október 2010 06:59|

Egill Helgason

Í Opnu húsi miðvikudaginn 27. október mun Egill Helgason, sjónvarpsmaður, tala um afa sinn, Ólaf Ólafsson, sem stundaði kristniboð á vegum Íslendinga í Kína. Veitingar á Torginu í upphafi.

By |2010-10-26T13:52:16+00:0026. október 2010 13:52|

Mannréttindi ráði

Mannréttindaráð Reykjavíkur hefur sett fram tillögur - í ýtrasta ýkjubúningi - um að kreista kristni út úr skólum - skerða, þrengja og úthýsa í stað þess að opna, víkka og auka fjölbreytni. Óttumst ekki margbreytileikann heldur fögnum honum og nýtum til eflingar samfélagið. Prédikun Sigurðar Árna 24. október 2010 er að baki smellunni.

By |2010-10-25T16:28:15+00:0025. október 2010 16:28|

Messa 24. október

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Lísbet, Andrea og Ari. Samfélag, veitingar og kaffi eftir messu á Torginu.

By |2010-10-21T12:03:39+00:0021. október 2010 12:03|

Heródesarkjúlli

Hvað borðaði biblíufólk? Í Neskirkju er súpa á hverjum virkum degi fyrir gesti og gangandi. En föstudaginn 22. október verður eldaður kjúklingaréttur Heródesar. Biblíumáltíðirnar eru í safnaðheimilinu í hádeginu á föstudögum. Máltíðir hefjast kl. 12. […]

By |2010-10-20T14:00:40+00:0020. október 2010 14:00|

Opið hús 20. október

Opið hús kl. 15. Kirkjutónlistin er fjölbreytileg. Sálmar eru sungnir í kirkjunni en sálmaforleikir eru sérstök listgrein organista. Steingrímur Þórhallsson, organisti Neskirkju, fjallar um sálmaforleiki fyrr og síðar. Veitingar á Torginu í upphafi.

By |2010-10-19T09:36:00+00:0019. október 2010 09:36|

Messa 17. október

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Samfélag, veitingar og kaffi eftir messu á Torginu.

By |2010-10-15T10:40:19+00:0015. október 2010 10:40|