Fréttir

Opið hús miðvikudaginn 24. nóvember

Opið hús kl. 15. Marteinn Lúther. Prestarnir María Ágústsdóttir og Bjarni Þór Bjarnason segja frá siðbótarmanninum og sýna myndir frá Lúthersslóðum. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi.

By |2010-11-23T13:25:43+00:0023. nóvember 2010 13:25|

Messa 21. nóvember

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Stúlknakórinn syngur. Nanna Halldóra Imsland syngur einsöng. Stjórnandi og organisti Steingrímur Þórhallsson. Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir prédikar. Sr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Lísbet, Andrea og Ari. Eftir messu mun Arnfríður og listakonan [...]

By |2010-11-18T12:00:52+00:0018. nóvember 2010 12:00|

Opið hús 17. nóvember

Opið hús kl. 15. Keltar, kristni og Íslendingar. Sr. Gunnþór Ingason er manna fróðastur um Kelta, papa og náttúruvænar trúarhugmyndir þeirra. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi. Sjá haust dagskrá hér!

By |2010-11-16T11:59:05+00:0016. nóvember 2010 11:59|

Kirkjulax

Þegar dimmir, kreppir að, margt verður mótdrægt í samfélagi Íslendinga er ljómandi að snúa bökum saman og halda veislu i kirkjunni. Starfsfólk Neskirkju, sjálfboðaliðar s.s. fólk i kórum og ráðum, efndi til vetrarhátíðar 11. nóvember. Hópur fólks eldaði, aðrir sáu um dagskrá, skreytingar og skemmtiatriði. Þessi samfélagshátíð efldi hug, kynni og veitti ljósi inn í [...]

By |2017-04-26T12:23:47+00:0015. nóvember 2010 14:13|

Messa 14. nóvember

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Lísbet, Andrea og Ari. Samfélag, veitingar og kaffi.

By |2010-11-11T11:22:15+00:0011. nóvember 2010 11:22|

Opið hús 10. nóvember

Opið hús kl. 15. Stórvirkjanir, verkfræðin og lífið. Kristján Már Sigurjónsson, sem hefur stjórnað ýmsum mestu virkjanaframkvæmdum Íslendinga m.a. Kárahnjúkavirkjun, segir frá því sem er á döfinni í virkjanamálum þjóðarinnar. Kaffiveitingar í upphafi á Torginu. Dagskrá í Opnu húsi.

By |2010-11-09T10:47:35+00:009. nóvember 2010 10:47|

Mannamyndir

Á jörðu er haldinn þjóðfundur til þjóðargagns. Á himnum er haldinn fjölmenningarlegur þjóðfundur eilífðar. Þar er hugað að gildum sem verða þér til lífs og góðs þessa heims og annars. Þaðan máttu draga lífsmátt og dug til hamingju. Og hún verður í tengslum við aðra, til gagns fyrir samfélag, þjóðfélag – og í tengslum við [...]

By |2010-11-08T09:46:08+00:008. nóvember 2010 09:46|

Allra heilgra messa

Messa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju. Organisti Hörður Áskelsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarsson. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Lísbet, Andrea og Ari. Samfélag, veitingar eftir messu á Torginu.

By |2010-11-04T14:19:15+00:004. nóvember 2010 14:19|

Biblíumatur

Gulrótar- og döðlusúpa verður Biblíumatur í hádeginu föstudaginn 5. nóvember. Biblían er góð fyrir heilbrigt andlegt líf og Biblíumatur er góður fyrir líkamann! Þar sem allir eru velkomnir ert þú og þitt fólk velkomið á Torgið í Neskirkju.

By |2010-11-03T08:08:00+00:003. nóvember 2010 08:08|

Tengsl ríkis og kirkju – aðgreining eða aðskilnaður?

Á að greina að ríki og kirkju og hver ættu tengslin að verða í framtíðinni? Dr. Hjalti Hugason flytur borðræðu á Torginu í safnaðarheimili Neskirkju fimmtudaginn 4. nóvember kl. 12. Eftir framsögu og súpu verða umræður. Torg Neskirkju er opinn vettvangur. Hvernig væri að skjótast til samfélags um mikilvæg mál og njóta andlegrar, líkamlegrar og [...]

By |2017-04-26T12:23:47+00:003. nóvember 2010 08:05|