Fréttir

Messa 13. febrúar

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Gunnsteinn Ólafsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Toshiki Toma. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.

By |2011-02-11T09:17:02+00:0011. febrúar 2011 09:17|

Hvað syngur í mér?

Opið hús miðvikudaginn 9. febrúar. Kristín Þórunn Tómasdóttir tekur með sér gítarinn í Neskirkju, syngur, spilar og deilir með okkur gleðiefnum sínum í lífinu. Hún er héraðsprestur í Kjalarnesprófastsdæmi, sérfræðingur í helgihaldi, hefur verið fulltrúi íslensku kirkjunnar í stjórn Lútherska heimssambandsins. Opið hús er alla miðvikudag kl. 15. Kaffiveitingar í upphafi á Torginu.

By |2011-02-07T12:30:47+00:007. febrúar 2011 12:30|

María í messu 6. febrúar

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. María Ágústsdóttir héraðsprestur prédikar. Dr. Sigurður  Árni Þórðarson þjónar fyrir altari ásamt sr. Toshiki Toma. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag, veitingar og kaffi á Torginu eftir messu.

By |2011-02-03T11:09:25+00:003. febrúar 2011 11:09|

Guðni Ágústsson í Opnu húsi

Í Opnu húsi miðvikudaginn 2. febrúar kemur Guðni Ágústsson, fv. ráðherra í heimsókn. Margt hefur verið eftir honum haft og ýmis tilsvör hans hafa flogið víða. Guðni rær á gleðimiðin, segir frá ýmsu skondnu og skemmtilegu, ljóðar jafnvel ef andinn blæs honum í brjóst. Opið hús hefst kl. 15 með kaffiveitingum á Torginu.

By |2011-02-01T09:51:41+00:001. febrúar 2011 09:51|

Amen

Ástin leitar hins heildstæða, bænin leitar hins altæka. Bæn varðar ekki aðeins uppfyllingu einhverrar kröfu eða óskar, heldur að opna lífið fyrir vori lífsins. Bæn er ekki aðeins það að biðja um lausn í einstökum málum og vandkvæðum, heldur að vilja, vona og tjá að lífið sé allt í hendi Guðs. Prédikun Sigurðar Árna 30. [...]

By |2017-04-26T12:23:46+00:0030. janúar 2011 18:16|

Messa sunnudaginn 30. janúar

Bænadagur á vetri. Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt með sr. Toshiki Thoma. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag, veitingar og kaffi á Torginu eftir messu.

By |2011-01-27T11:13:10+00:0027. janúar 2011 11:13|

Opið hús miðvikudaginn 26. janúar

Opið hús kl. 15. Ílending listar. Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Íslands, ræðir um málarann Rafael og hina frægu mynd hans Ummyndun og hvernig hún tengist myndlist samtíma og túlkun seinni tíma manna. Kaffiveitngar á Torginu í upphafi. Dagskrá í Opnu húsi!

By |2011-01-25T11:02:46+00:0025. janúar 2011 11:02|

Messa sunnudaginn 23. janúar

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari en hann fer nú í leyfi vegna starfa á stjórnlagaþingi. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag, veitingar og kaffi á Torginu [...]

By |2011-01-20T12:46:36+00:0020. janúar 2011 12:46|

Áfram Ísland !!

Á morgun fimmtudag var á dagskrá fermingarfræðslunnar fræðslukvöld fyrir foreldra og ungmenni um samskipti og kynslóðabil. Hvernig líður þér? kvöldinu verður frestað um viku til fimmtudagskvöldsins 27. janúar kl. 18.00 - 19.30 vegna landsleiks Íslendinga og Norðmanna. Við styðjum Strákana Okkar og hlustum á Rás 2.

By |2011-01-19T14:20:48+00:0019. janúar 2011 14:20|

Opið hús og bókin um Gunnar Thoroddsen 19. janúar kl. 15

Opið hús hefst að nýju 19. janúar 2011 k. 15. Guðni Th. Jóhannesson, höfundur bókarinnar um Gunnar Thoroddsen kemur í heimsókn og segir frá ritun bókarinnar, dagbókum Gunnars og fleiru. Missið ekki af þesssu tækifæri til að hitta höfundinn, heyra hans sögu og fá að spyrja hann um pólitíkina á liðinni öld. Kaffi og meðlæti í boði Neskirkju. [...]

By |2011-01-18T11:30:27+00:0018. janúar 2011 11:30|