Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari en hann fer nú í leyfi vegna starfa á stjórnlagaþingi. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag, veitingar og kaffi á Torginu eftir messu. Ræðu sr. Arnar er hægt að nálgast hér.