Árstíðir og geðslag
Opið hús kl. 15. Pétur Hauksson geðlæknir, fræðir um árstíðir og geðslag og fleira úr heimi geðlæknisfræðinnar. Kaffiveitingar í upphafi á Torginu.
Opið hús kl. 15. Pétur Hauksson geðlæknir, fræðir um árstíðir og geðslag og fleira úr heimi geðlæknisfræðinnar. Kaffiveitingar í upphafi á Torginu.
Kristin kirkja á að fylgja Jesú Kristi en ekki öfugt. Þegar stofnun, siður eða kenning hafa forgang er alltaf hætta á Jesús Kristur sé skilinn í ljósi þeirra en ekki öfugt. Prédikun Sigurðar Árna á öðrum sunnudegi eftir páska, 22. apríl, er að baki þessari smellu.
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Toshiki Toma. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. Samfélag og veitingar á Torginu eftir [...]
Okkur í NeDó, unglingastarfi Neskirkju og Dómkirkju hefur löngum fundist það bjartsýni að halda sumardaginn fyrsta í miðjum aprílmánuði. Þeirri bjartsýni fögnuðum við í Vesturbæjarlauginni í morgun sem var í umsjá unglingaleiðtoga úr NeDó. Katrín Helga stýrði dagskrá, Daníel Ágúst var með hugleiðingu, Heiða, Þorbjörg og Helena sungu og Jökull og Guðný sáu um ritningalestra. [...]
Prestar og starfsfólk Neskirkju er sannarlega stollt af fermingarungmennum þessa vors og hér má sjá myndir af þessum fríða flokki. […]
Opið hús miðvikudaginn 11. apríl kl. 15. Herdís Þorvaldsdóttir er leikkona og baráttukona. Hún hefur markað djúp spor í leikhúsheimi Íslendinga. Hún hefur einnig beitt sér fyrir landvernd og ábyrgð í umgengni við landið. Herdís ræðir um vorið og flytur vorefni. Opið hús er alla miðvikudaga og byrjar á Torginu með kaffiveitingum.
Prédikun sr. Sigurvins Jónssonar á föstudaginn langa. Það er kaldhæðnislegt að sú beitta ádeila á valdsbeitingu sem birtist í Píslarsögunni hafi verið beitt sem valdatæki. Biblían hefur verið og er notuð sem valdatæki og vopn, jafnvel í okkar kirkju. Kirkjan er valdastofnum og hún gerir tilkall til valds, m.a. á grundvelli þeirrar stöðu sem að [...]
Messa kl. 21.00. Við lok messunnar verður altarið afskrýtt og á það lagðar 5 rósir sem tákn um sármerki Krists. Einleikur á gítar Kristófer Kvaran. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Vaktu með Kristi. Vaka með unglingum af höfuðborgarsvæðinu hefst í messunni og stendur til morguns.
Guðsþjónusta kl. 11.00. Píslarsagan lesin. Ragnhildur Dóra Þórhallsdóttir syngur einsöng. Pamela de Sensi flytur Requiem nýtt verk fyrir einleiksflautu eftir organista kirkjunnar. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Sigurður Árni Þórðarson.
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kór, Barnakór og Stúlknakór Neskirkju syngja. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.