Aldin – eldri aðgerðarsinnar gegn loftslagsvá, vettvangur eldra fólks sem lætur sig loftslagsmál og umhverfisvernd varða, tekur virkan þátt í messunni. Félagar úr Aldin syngja undir stjórn Sólveigar Baldursdóttur og Søren Gaardsted Frandsen organisti leikur undir.

Pétur Gunnarsson les ljóð og Steinunn Jóhannesdóttir les ritningarlestur.

Sr. Sigurður Árni Þórðarson predikar og sr. Skúli Sigurður Ólafsson þjónar fyrir altari.

Barnastarf fer fram í safnaðarheimilinu á sama tíma í umsjá Nönnu, Kristrúnar, sr. Jóns Ómars og Ara Agnarssonar.

Verið hjartanlega velkomin til messu og samfélags í Neskirkju!